Fótbolti

Griezmann furðar sig á því að enginn heimsmeistari sé tilnefndur hjá FIFA

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Antoine Griezmann hleypur um með HM-bikarinn eftir úrslitaleikinn í Moskvu í sumar.
Antoine Griezmann hleypur um með HM-bikarinn eftir úrslitaleikinn í Moskvu í sumar. Vísir/Getty
FIFA hefur gefið það út hvaða þrír leikmenn komi til greina sem besti knattspyrnumaður heims í ár. Margir voru hissa á því að þar var enginn Lionel Messi en Antoine Griezmann hefur líka bent á aðra athyglisverða staðreynd.

Þetta er í fyrsta sinn í tólf ár sem Lionel Messi er ekki meðal þeirra þriggja efstu í kjörinu. Messi komst hins vegar hvorki í undanúrslitin í Meistaradeildinni eða á heimsmeistaramótinu í Rússlandi.

Cristiano Ronaldo, Mohamed Salah og Luka Modric voru tilnefndir að þessu sinni. Ronaldo og Modric unnu Meistaradeildina með Real Madrid og Salah komst í úrslitaleikinn með Liverpool.

Salah komst hins vegar ekki upp úr riðlunum með Egyptum á HM og Ronaldo og Portúgalar fóru heldur ekki langt. Luka Modric var aftur á móti kosinn besti leikmaður keppninnar þar sem hann fór óvænt í úrslitaleikinn með Króötum.





Frakkinn Antoine Griezmann er allt annað en sáttur með tilnefningarnar í ár og þá staðreynd að þar sem enginn úr heimsmeistaraliði Frakka.

„Þetta er furðulegt og mikil synd. Þetta er stærsti titilinn hjá FIFA, er það ekki? Við vinnum heimsmeistaramótið og það er enginn franskur leikmaður tilnefndur. Menn þurfa alltaf að velja á milli manna en ég er mjög hissa á því að það skulu enginn Frakki vera þarna,“ sagði Antoine Griezmann við L'Equipe.

Antoine Griezmann sér sjálfan sig sem einn af þeim sem áttu möguleika á að vera þarna.

„Ég átti mitt besta tímabil. Það hafa verið tímabil þar sem ég hef skorað fleiri mörk en ef við skoðum titlana þá var þetta mitt besta ár,“ sagði Griezmann. Atletico Madrid birti mynd af honum með alla bikarana sem svar við fréttinum af tilefningum FIFA.  Þar undir stóð: Orðlaus.





Honum dreymir um að vinna Gullboltann eins og fleirum en þetta eru sérstaklega stór verðlaun fyrir Frakka enda verðlaunin búin til að franska blaðinu France Football.

 „Fyrir leikmann þá komast menn ekki hærra. Það er ekkert stærra og ekkert betra. Þú getur unnið einstaklingsverðlaun í deildinni, á HM og á EM en það er ekki það sama,“ sagði súr Griezmann.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×