Reyna að draga úr spennu í samskiptum ríkjanna Atli Ísleifsson skrifar 5. september 2018 22:34 Heiko Maas og Mevlüt Cavusoglu, utanríkisráðherrar Þýskalands og Tyrklands, í Ankara fyrr í dag. Vísir/Getty
Utanríkisráðherrar Þýskalands og Tyrklands funduðu í tyrknesku höfuðborginni Ankara fyrr í dag, en samskipti ríkjanna hafa verið sérstaklega stirð síðustu tvö árin. Með fundunum er vonast til að hægt verði að draga úr spennu milli ríkjanna. „Tyrkland og Þýskaland vinna nú ötullega að því að styrkja böndin,“ sagði Mevlüt Cavusoglu, utanríkisráðherra Tyrklands, á fréttamannafundi í tengslum við fund hans og starfsbróður síns frá Þýskalandi, Heiko Maas. Maas fundaði sömuleiðis með Recep Tayyip Erdogan Tyrklandsforseta. Auk þess að ræða samskipti ríkjanna ræddu ráðherrarnir ástandið í sýrlensku borginni Idlib og sagði Maas að þýska ríkisstjórnin íhugi nú að senda aukna aðstoð til Sýrlendinga sem hafi flúið til nágrannaríkja. Samskipti Þýskalands og Tyrklands hafa verið stirð allt frá misheppnaðri valdaránstilraun í Tyrklandi árið 2016. Þá hefur þýska stjórnin mótmælt að fjölda þýskra ríkisborgara sé haldið í tyrkneskum fangelsum sem pólitískir fangar. Þá hefur Erdogan verið reiður þýskum stjórnvöldum fyrir að banna tyrkneska kosningafundi í Þýskalandi. Síðar í mánuðinum mun Erdogan halda í opinbera heimsókn til Þýskalands.
Mest lesið Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Of þung en annars hraust á Ozempic Innlent Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Innlent Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Innlent Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Innlent Segja grafalvarlegt mál að fresta atkvæðagreiðslu Innlent Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Innlent Myndband sýnir árás Diddy Erlent „Engu okkar er boðið að koma þarna og sjá“ Innlent „Það er miður að það falli til kostnaður vegna þessa“ Innlent Fleiri fréttir Myndband sýnir árás Diddy Færeyingar felldu frumvarp um fóstureyðingar Þrjátíu ár fyrir árásina á mann þingforsetans Segir Rússa ekki hafa í hyggju að taka Kharkív Viðtal á Stöð 2 kveikir upp í færeyskum stjórnmálum Reyndi að kveikja í bænahúsi gyðinga og var skotinn til bana Spánverjar neita skipi með vopn innanborðs um að leggja að bryggju „Einfari“ ákærður fyrir tilræðið við Fico Hver er Robert Fico? Neyðarástandi lýst yfir á Nýju-Kaledóníu eftir miklar óeirðir Ágreiningur innan stjórnarinnar brýst upp á yfirborðið Hægriflokkar ná saman um myndun ríkisstjórnar Samið um kappræður í júní og september Fico ekki talinn í lífshættu Þróun ES-30 flugvélarinnar flutt frá Svíþjóð til Kaliforníu Þetta er vitað um árásarmanninn Biden skorar á Trump Forsætisráðherra Slóvakíu í lífshættu eftir skotárás Þverpólitískar tillögur um viðbrögð vegna gervigreindar FIFA byrjað að vinda ofan af umbótum eftir spillingarhneykslið Fulltrúar Talíbana á ráðstefnu í Ósló Fyrsta opinbera málverkið af konunginum Karli III afhjúpað í gær Gróðureldar ógna olíuvinnslumiðstöð í Kanada Gríðarleg leit gerð að mönnum sem frelsuðu fanga í Frakklandi Skriðdrekar Ísraelshers komnir inn í íbúðahverfi í Rafah Framámaður AfD sektaður fyrir að nota slagorð nasista Vill bjóða NATO að byggja nýjan flugvöll í Færeyjum Þorir að veðja bjór á að hún verði áfram forsætisráðherra Lokað á grein um barnadráp í Bretlandi Drápu fangaverði og hjálpuðu fanga að strjúka Sjá meira