Svona var Erik Hamrén kynntur til leiks Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 8. ágúst 2018 14:00 Erik Hamrén. Vísir/Vilhelm Erik Hamrén var í dag kynntur sem nýr landsliðsþjálfari Íslands í fótbolta. Hann tekur við starfinu af Heimi Hallgrímssyni. Hamrén hefur verið viðriðinn þjálfun síðan 1994 og unnið til titla með félagsliðum á Norðurlöndunum. Hann sagði þetta starf, að þjálfa íslenska karlalandsliðið, líklega vera hans stærstu áskorun á ferlinum. Svíinn gerði samning við KSÍ til tveggja ára með möguleika á framlengingu til tveggja ára til viðbótar. Honum til aðstoðar verður Freyr Alexandersson, þjálfari kvennalandsliðsins. Eftir að Heimir Hallgrímsson tilkynnti um að hann myndi láta af störfum voru yfir þrjátíu nöfn sem komu inn á borð KSÍ. Sá listi var minnkaður niður í fimm nöfn áður en Hamrén var valinn. Eftir að Hamrén var valinn rúllaði boltinn hratt og aðeins eru um tvær vikur síðan KSÍ hafði fyrst samband við Svíann. Fyrstu verkefni nýs þjálfara eru í september þegar Ísland mætir Sviss og Belgíu í Þjóðadeildinni, fyrsti leikurinn 8. september í Sviss. Vísir var með beina útsendingu frá blaðamannafundi KSÍ í Laugardalnum sem sjá má hér að neðan.
Erik Hamrén var í dag kynntur sem nýr landsliðsþjálfari Íslands í fótbolta. Hann tekur við starfinu af Heimi Hallgrímssyni. Hamrén hefur verið viðriðinn þjálfun síðan 1994 og unnið til titla með félagsliðum á Norðurlöndunum. Hann sagði þetta starf, að þjálfa íslenska karlalandsliðið, líklega vera hans stærstu áskorun á ferlinum. Svíinn gerði samning við KSÍ til tveggja ára með möguleika á framlengingu til tveggja ára til viðbótar. Honum til aðstoðar verður Freyr Alexandersson, þjálfari kvennalandsliðsins. Eftir að Heimir Hallgrímsson tilkynnti um að hann myndi láta af störfum voru yfir þrjátíu nöfn sem komu inn á borð KSÍ. Sá listi var minnkaður niður í fimm nöfn áður en Hamrén var valinn. Eftir að Hamrén var valinn rúllaði boltinn hratt og aðeins eru um tvær vikur síðan KSÍ hafði fyrst samband við Svíann. Fyrstu verkefni nýs þjálfara eru í september þegar Ísland mætir Sviss og Belgíu í Þjóðadeildinni, fyrsti leikurinn 8. september í Sviss. Vísir var með beina útsendingu frá blaðamannafundi KSÍ í Laugardalnum sem sjá má hér að neðan.
Fótbolti Mest lesið Þetta gerðist í lokaumferðinni í enska | City meistari og Jóhann Berg kvaddi Enski boltinn Usyk fyrstur til að vinna Fury Sport Daníel stórbætti þrjátíu ára Íslandsmet Jóns Arnars Sport Telur að Usyk hafi unnið vegna stríðsins í Úkraínu Sport Skytturnar gerðu sitt en horfa samt á eftir titlinum Enski boltinn Manchester City Englandsmeistari fjórða árið í röð Fótbolti Klopp kvaddi með sigri Fótbolti Var spáð falli en eru á leið í Meistaradeildina Fótbolti Tapið í gær þýðir að Kane missir af enn einum titlinum Fótbolti Klopp segir að Liverpool verði í góðum höndum hjá Slot Enski boltinn Fleiri fréttir Þetta gerðist í lokaumferðinni í enska | City meistari og Jóhann Berg kvaddi Manchester City Englandsmeistari fjórða árið í röð United skemmdi kveðjupartý De Zerbi Skytturnar gerðu sitt en horfa samt á eftir titlinum Klopp kvaddi með sigri Ísak lagði upp mark í fyrsta byrjunarliðsleiknum Missti af rauðvínsglasi með Sir Alex Klopp segir að Liverpool verði í góðum höndum hjá Slot Ten Hag segir United í betri stöðu en fyrir ári Tapið í gær þýðir að Kane missir af enn einum titlinum Chelsea sækir undrabarn frá Brasilíu Var spáð falli en eru á leið í Meistaradeildina Ótrúlegir yfirburðir tryggðu tíunda bikarmeistaratitilinn Stutt gaman hjá Birki er Brescia missti af sæti í efstu deild AC Milan hleypti Torino inn í Evrópubaráttu Keflavík og Grindavík tryggðu sér sæti í átta liða úrslitum Jón Daði og félagar náðu ekki að koma sér upp um deild Hayes kvaddi Chelsea með fimmta titlinum í röð og Dagný komin í hóp Leiknir vann Breiðholtsslaginn og Njarðvík með fullt hús stiga Reus kvaddi með draumamarki og Leverkusen kláraði tímabilið ósigrað De Zerbi hættir hjá Brighton Foden valinn bestur á Englandi Sandra María lagði upp bæði mörk Þórs/KA í bikarsigri á Dalvík Hélt upp á landsliðsvalið með marki Tvisvar sinnum rekinn á sama deginum Arteta vonast eftir hjálp frá Moyes: „Vonandi gerist eitthvað dásamlegt“ Klökkur Jóhann Berg beygði af í viðtali Jóhann Berg fer frá Burnley í sumar Íhuga að reka Xavi sem hætti við að hætta Klopp myndi kjósa með afnámi VAR Sjá meira