Læknanemi í sumarstarfi á Landspítalanum treður upp á Þjóðhátíð Stefán Árni Pálsson skrifar 30. júlí 2018 11:30 Victor er að fara á fimmta ár í læknisfræði í Slóvakíu. „
Somebody Like You er annað frumsamda lagið sem ég gef út sjálfur, en fyrir utan nokkur Remix sem ég hef gefið út var fyrsta lagið Feeling sem ég gaf út í fyrra ásamt norskum pródúser sem kallar sig HAV2,“ segir Victor Guðmundsson sem er í læknisfræði í Martin í Slóvakíu. Hann var að klára fjórða árið og mun útskrifast 2020. Victor er aftur á móti að gera það gott sem plötusnúður í Slóvakíu og kallar sig Doctor Victor. „Röddin sem ég nota í laginu fékk ég senda og mér fannst hún það góð að hugmyndin kviknaði strax. Lagið fjallar einfaldlega um að finna þann eina rétta, það er ekki flóknara en það.“ Victor mun í haust byrja á sínu fimmta ári í læknisfræði.Victor á Þjóðhátíði í fyrra.„Í sumar hef ég unnið á Landspítalanum, sem er mjög fjölbreytt og lærdómsríkt, ásamt því að spila á milli vakta. Ég mun svo spila núna annað árið í röð á Þjóðhátíð í Eyjum og er ég mjög spenntur fyrir því, en það var algjör snilld í fyrra. Ég hef ekki sleppt úr ári síðan ég fór fyrst en það er einfaldlega þannig að þegar maður hefur farið einu sinni og veit hvernig þetta er, þá er mjög erfitt að mæta ekki.“ Victor segist vera fara í tökur á nýju tónlistarmyndbandi sem verður unnið í samstarfi við RVK Events. „Svo er ég að fara að spila í Slóvakíu og Ungverjalandi þegar ég fer aftur út, en ég er líka á fullu að vinna í nýrri tónlist. Ég stefni á að gefa út nýtt lag á um það bil mánaða fresti og er einmitt að leggja lokahönd á Remix fyrir Þjóðhátíð sem ég hlakka mikið til að spila þar.“ Hér að neðan má hlusta á nýtt lag með Doctor Victor. ÞJÓÐHÁTÍÐ 2018. Mjög spenntur að tilkynna það að ég verð að spila annað árið mitt í röð á Þjóðhátíð í Hvíta Tuborg Tjaldinu - hlakka til að sjá ykkur þar! _______________________________________ Doctor Victor & HAV2 - Feeling www.dalurinn.is / @evamey _______________________________________ Proud to announce that I will be playing at Þjóðhátíð, the biggest festival in Iceland, my 2nd year in a row. Looking forward to see you there! A post shared by (@doctorvictorsound) on Jul 8, 2018 at 10:32am PDT
Landspítalinn Þjóðhátíð í Eyjum Tengdar fréttir Íslenskur læknanemi gerir það gott sem plötusnúður í Slóvakíu: „Er að rokka David Guetta greiðsluna“ "Ég byrjaði að spila hér úti í Slóvakíu árið 2015, en ég hef alltaf haft mikinn áhuga fyrir tónlist síðan ég var ungur.“ 25. maí 2018 11:15 Mest lesið Reynir og Sólveig giftu sig í rauðu Lífið Á götunni ellefu ára og segir kerfið hafa gefist upp þegar hún var þrettán Lífið Laufey Lín sló í gegn á Coachella Tónlist Sigurður Sævar og Guðbjörg í sundur Lífið Britney farin í meðferð Lífið Stjörnulífið: Helen og Ruben ástfangin á Ítalíu Lífið Mesta áskorunin að greinast með hryggskekkju Lífið „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Lífið Söngvari Massive Attack handtekinn á mótmælum Lífið Ekki er allt sem sýnist í Dimmu Tónlist Fleiri fréttir Mesta áskorunin að greinast með hryggskekkju Sigurður Sævar og Guðbjörg í sundur Britney farin í meðferð Reynir og Sólveig giftu sig í rauðu Á götunni ellefu ára og segir kerfið hafa gefist upp þegar hún var þrettán Söngvari Massive Attack handtekinn á mótmælum Stjörnulífið: Helen og Ruben ástfangin á Ítalíu Fortíðarþrá einkenndi endurkomuna á stóra sviðið Eilíf glötun bíður ekki endilega bóka í ruslagámum „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Neyðarlegast að handleggsbrjóta vinkonu á sviði Krakkatía vikunnar: Skoffín, geitur og jarðarber Allir og amma þeirra í bókaklúbb Brúðkaupsdagurinn skilaði rúmum þremur milljónum Tónlist sem tekur á skömm og ótta með nokkrum blótsyrðum Steig fram eftir að sex ára dóttir hennar varð fyrir rasisma Mildari og þolinmóðari við sjálfa sig eftir greininguna Fréttatía vikunnar: Bó, vatn og vopnahlé Leitaði upprunans og fékk óvænta frænku í heimsókn Páll Edwald og Selma Eir trúlofuð „Er ég að klikka strax í 50?“ „Maður þarf að gera alla hluti upp“ Umdeildi brautryðjandinn Afrika Bambaataa allur Lærði að lifa lífinu upp á nýtt eftir alvarleg veikindi Sjarmatröllið sem setti popptónlist í öndvegi Halla gerir undantekningu vegna andlátsins Það er komið gó hjá Bó Svala minnist pabba síns Tekur við af dóttur kærastans Lifir með sjúkdóminum en lætur ekkert stöðva sig Sjá meira
Íslenskur læknanemi gerir það gott sem plötusnúður í Slóvakíu: „Er að rokka David Guetta greiðsluna“ "Ég byrjaði að spila hér úti í Slóvakíu árið 2015, en ég hef alltaf haft mikinn áhuga fyrir tónlist síðan ég var ungur.“ 25. maí 2018 11:15