Alvogen fer fram á lögbann á lyf sem nota á í aftöku Stefán Rafn Sigurbjörnsson skrifar 11. júlí 2018 13:00 Aftakan fer fram í nótt Vísir/EPA
Alþjóðlega lyfjafyrirtækið Alvogen hefur höfðað mál gegn Nevada ríki í Bandaríkjunum en ríkið hyggst nýta lyf fyrirtækisins í aftöku. Til stendur að Scott Dozier verði tekinn af lífi í Nevada ríki í Bandaríkjunum klukkan þrjú í nótt að íslenskum tíma. Hann var dæmdur til dauða árið 2007 fyrir að drepa og aflima 22 ára gamlan mann í Las Vegas. Við aftökuna á Dozier verður notuð lyfjablanda þriggja lyfja. Fentanyl, Cisatracurium Besylate og Midazolam, sem er róandi lyf sem Alvogen framleiðir. Þetta er í fyrsta sinn sem þessi lyfjakokteill er notaður við aftöku. Dozier hefur sjálfur sagt að lífstíðarvist í fangelsi sé ekkert líf og hefur óskað eftir því að vera tekinn af lífi sem allra fyrst. Alvogen hefur farið fram á lögbann á notkun Midazolam en Halldór Kristmannsson, framkvæmdastjóri hjá Alvogen, segir í samtali við fréttastofu að það samræmist ekki stefnu Alvogen að selja lyf til fangelsismálayfirvalda með það að leiðarljósi að taka fólk af lífi. Alvogen telur að fangelsismálayfirvöld í Nevada hafi þannig útvegað lyfið með ólögmætum hætti, án þess að tilgreina í hvað það skuli notað. Halldór segir að fyrirtækjamenning Alvogen og öll þróun og markaðssetning lyfja fyrirtækisins hafi það markmið að auka lífsgæði fólks og það séu því mikil vonbrigði að yfirvöld í Nevada fyrirhugi að nota lyf fyrirtækisins með ólögmætum hætti. Teljast verður ólíklegt að lögbannskrafan komi í veg fyrir aftökuna þar sem hún verður tekin fyrir í dómstóli í Nevada klukkustund eftir að aftakan mun eiga sér stað.
Mest lesið Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Innlent Gantz hótar að segja af sér vegna ósættis við Netanjahú Erlent Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Innlent Ástand Fico enn alvarlegt Erlent Með vopn og fíkniefni í útistöðum við dyravörð Innlent Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Innlent „Nú á dögunum tók sonur minn líf sitt innan veggja fangelsisins“ Innlent Býst við aukinni sókn Rússa Erlent Fleiri fréttir Með vopn og fíkniefni í útistöðum við dyravörð Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra 40 tungumál eru töluð í leik- og grunnskólum Árborgar Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Þungar áhyggjur af þyngdarstjórnunarlyfjum Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Slasaður eftir hestaslys í Ölfusi Nauðsynlegt að fresta atkvæðagreiðslu um umdeilda verksmiðju Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Segja grafalvarlegt mál að fresta atkvæðagreiðslu „Það er miður að það falli til kostnaður vegna þessa“ Átök í Ölfusi og offitulyf Ákærður fyrir að pissa daginn eftir Fiskidaginn mikla Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Nauðugur sá kostur að fresta atkvæðagreiðslunni „Engu okkar er boðið að koma þarna og sjá“ Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Of þung en annars hraust á Ozempic Slagsmálahundar afþökkuðu aðstoð lögreglu Útgjöld ríkissjóðs vegna Grindavíkur hátt í hundrað milljarðar Fresta íbúakosningu í Ölfusi um mölunarverksmiðju Lífleg og skrautleg kosningabarátta að mati forsætisráðherra Dregur saman með efstu frambjóðendum Mesta kvika frá því að kvikugangurinn myndaðist Nota sykursýkislyf til að léttast og Rottweilerhundar bjóða í partý Látin móðir ekki dæmd í tugmilljóna lyfjasölumáli sonarins Sendiherra, sveitarstjóri og bæjarstjóri skipuð í nefnd Ætlar alla leið í baráttu fyrir nafninu sínu Stuðningslán með ríkisábyrgð fyrir grindvísk fyrirtæki Skipið leggur úr höfn Sjá meira