Sport

Guðbjörg Jóna Evrópumeistari í 100m hlaupi

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Guðbjörg Jóna ásamt félögum úr íslenska liðinu úti í Ungverjalandi
Guðbjörg Jóna ásamt félögum úr íslenska liðinu úti í Ungverjalandi mynd/frí
Ísland eignaðist í dag Evrópumeistara þegar Guðbjörg Jóna Bjarnadóttir sigraði í 100 metra hlaupi á EM U18 ára í Györ í Ungverjalandi.

Guðbjörg Jóna var nálægt Íslandsmetinu í greininni í undanrásum mótsins þegar hún hljóp á 11,70 sekúndum. Í dag kom hún í mark á 11,75 sekúndum, líkt og Pamera Losagne frá Frakklandi og Takacs Boglaraka frá Ungverjalandi.

Guðbjörg var sex þúsundustu úr sekúndu á undan hinum tveimur og hreppti því gullið. Hennar besti tími í greininni er 11,68 sekúndur. Íslandsmetið í greininn er 11,63 sekúndur.

Guðbjörg er fædd árið 2001 og er Íslandsmethafi í 200 metra hlaupi. Hún á enn eftir að keppa í þeirri grein á mótinu og gæti því bætt öðru Evrópumeistaragulli við áður en yfir líkur.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×