Hvolfdi við strendur Túnis Stefán Ó. Jónsson skrifar 4. júní 2018 06:22 Slysið varð við austurströnd Túnis. Vísir/Getty
Hið minnsta 48 flóttamenn létu lífið þegar bátnum þeirra hvolfdi við austurströnd Túnis. Strandgæslum Miðjarðarhafsríkja tókst að bjarga 67 á lífi úr sjónum. Túnis er orðinn einn helsti viðkomustaður flóttamanna áður en þeir halda för sinni áfram yfir til Evrópu. Breska ríkisútvarpið segir að það megi rekja til aðgerða gegn smyglurum í nágrannaríkinu Líbýu, sem hafa drepið, pyntað og hneppt flóttamenn í þrældóm. Smyglararnir hafi því í auknum mæli fært starfsemi sína yfir landamærin. Þá sé siglingin jafnframt styttri til Ítalíu frá Túnis en frá Líbýu. Talið er að um 180 manns hafi verið í bátnum sem hvolfdi um helgina, þar af voru 100 farþegar frá Túnis. Björgunaraðgerðir voru stöðvaðar í gærkvöldi en innanríkisráðherra Túnis segir að þeim verði framhaldið í birtingu. Í samtali við Reuters sagði einn sjónarvottur að skipstjóri bátsins hafi stungið af skömmu eftir að síga fór á ógæfuhliðina. Ætla má að hann hafi verið að flýja laganna verði.
Túnis Mest lesið Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Innlent Of þung en annars hraust á Ozempic Innlent Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Innlent Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Innlent Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Innlent Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Innlent Slasaður eftir hestaslys í Ölfusi Innlent Segja grafalvarlegt mál að fresta atkvæðagreiðslu Innlent Myndband sýnir árás Diddy Erlent Fleiri fréttir Ástand Fico enn alvarlegt Býst við aukinni sókn Rússa Beitti neitunarvaldi gagnvart umdeildum fjölmiðlalögum Myndband sýnir árás Diddy Færeyingar felldu frumvarp um fóstureyðingar Þrjátíu ár fyrir árásina á mann þingforsetans Segir Rússa ekki hafa í hyggju að taka Kharkív Viðtal á Stöð 2 kveikir upp í færeyskum stjórnmálum Reyndi að kveikja í bænahúsi gyðinga og var skotinn til bana Spánverjar neita skipi með vopn innanborðs um að leggja að bryggju „Einfari“ ákærður fyrir tilræðið við Fico Hver er Robert Fico? Neyðarástandi lýst yfir á Nýju-Kaledóníu eftir miklar óeirðir Ágreiningur innan stjórnarinnar brýst upp á yfirborðið Hægriflokkar ná saman um myndun ríkisstjórnar Samið um kappræður í júní og september Fico ekki talinn í lífshættu Þróun ES-30 flugvélarinnar flutt frá Svíþjóð til Kaliforníu Þetta er vitað um árásarmanninn Biden skorar á Trump Forsætisráðherra Slóvakíu í lífshættu eftir skotárás Þverpólitískar tillögur um viðbrögð vegna gervigreindar FIFA byrjað að vinda ofan af umbótum eftir spillingarhneykslið Fulltrúar Talíbana á ráðstefnu í Ósló Fyrsta opinbera málverkið af konunginum Karli III afhjúpað í gær Gróðureldar ógna olíuvinnslumiðstöð í Kanada Gríðarleg leit gerð að mönnum sem frelsuðu fanga í Frakklandi Skriðdrekar Ísraelshers komnir inn í íbúðahverfi í Rafah Framámaður AfD sektaður fyrir að nota slagorð nasista Vill bjóða NATO að byggja nýjan flugvöll í Færeyjum Sjá meira