Viðskipti innlent

Hermann þóttist vera frá Suður-Afríku til að geta tekið þátt í gleðinni

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Hermann Hreiðarsson í leik með Charlton á sínum tíma. Hér í baráttunni við Nolberto Solano.
Hermann Hreiðarsson í leik með Charlton á sínum tíma. Hér í baráttunni við Nolberto Solano. Vísir/EPA
Um 95 prósent tekna FIFA á árunum 2014 til 2018 verða vegna heimsmeistarakeppninnar í knattspyrnu sem fram fer í Rússlandi í sumar. Sé leiðrétt fyrir falli rúblunnar er kostnaður vegna leikvanga mótsins kominn 150 prósent fram úr áætlunum. Eitthvað sem er regla þegar kemur að heimsmeistaramótum og Ólympíuleikum.

Þetta er meðal þess sem fram kom í máli Björns Berg Gunnarssonar, fræðslustjóra Íslandsbanka, á kynningarfundi í höfuðstöðvum bankans á dögunum. Björn kynnti þar skýrslu sína um fjármál HM 2018 (PDF) þar sem Íslendingar verða í fyrsta skipti á meðal þátttökuþjóða.

Björn kynnti ýmsar forvitnilegar staðreyndir varðandi HM, meðal annars þá að keppnin felur í sér gríðarlegan kostnað fyrir gestgjafann hverju sinni en á sama tíma græðir FIFA á tá og fingri. Upphæðirnar eru svo háar að óhjákvæmilega veltir maður fyrir sér hvort ekki væri hægt að nýta peningana í mikilvægari málstað.

Guðmundur Benediktsson íþróttalýsandi og Hermann Hreiðarsson, fyrrverandi landsliðsmaður, ræddu málin við Björn og var komið víða við. Meðal annars rifjaði Hermann upp þegar hann skellti sér á barinn með félögum sínum úr Charlton, Shaun Bartlett og Mark Fish, þegar tilkynna átti hvaða þjóð myndi halda HM 2010.

Svo fór að Suður-Afríka tryggði sér keppnina og ætlaði allt um koll að keyra hjá þeim Fish, Bartlett og Hermanni sem segir ekkert annað hafa verið í stöðunni en að þykjast vera frá Suður-Afríku. Gleðin hafi verið svo mikil að það mætti halda að Suður-Afíka hefði orðið heimsmeistari.

Upptöku frá fundinum má sjá hér að neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×