Hið vinsæla góðgerðarhlaup Wings for Life haldið í fyrsta sinn á Íslandi Stefán Árni Pálsson skrifar 26. apríl 2018 16:00 Ástralir þurfa að hlaupa að nóttu til og eru því með höfuðljós í hlaupinu
Wings for Life hlaupið fræga verður haldið í fyrsta skipti hér á landi sunnudaginn 6. maí næstkomandi. Um er að ræða alþjóðlegt átak en allur ágóði af hlaupinu rennur til rannsókna á mænuskaða. Yfir 50 lönd taka þátt í hlaupinu að þessu sinni en rástíminn er sá sami um allan heim, kl. 11:00 að íslenskum tíma. Mörg lönd þurfa því að hlaupa um miðja nótt en Íslendingar eru heppnir með tímasetninguna. Í fyrra söfnuðust yfir 800 milljónir króna á heimsvísu en allur ágóði hlaupsins rennur til góðgerðarstofnunarinnar Wings for Life sem vinnur að því að finna lækningu við mænuskaða. Það er því ánægjulegt að Íslendingar fá tækifæri til þess að taka þátt í þessu heimsþekkta hlaupi og í leiðinni látið gott af sér leiða.Eina hlaupið sinnar tegundar á Íslandi Hlaupið er óvenjulegt að því leyti að það er ekkert fyrir fram ákveðið endamark. Til þess að skrá sig í hlaupið þarf að sækja Wings for Life World Run appið. Appið er svo notað sem mikilvægur þáttur í hlaupinu þar sem „eltibíll“ í appinu keyrir af stað hálftíma eftir að hlaupið hefst og reynir að ná keppendum. Bíllinn ekur um á 15 km/klst en þegar bíllinn tekur fram úr keppenda er hann eða hún sjálfkrafa úr leik. Wings for Life World appið:Fyrir iPhone notendurFyrir Samsung notendurSkráning í hlaupið er hafin og kostar 20 evrur að taka þátt eða um 2.400 íslenskar krónur. Hlaupið verður í kringum Rauðavatn en hringurinn er um 7 km að lengd. Það verður því hlaupið hring eftir hring þar til eltibíllinn nær keppendum.
Mest lesið Arnór Sig kominn á fast Lífið Stjörnulífið: Fáklædd og frjáls Lífið „Erum bara vinir“ Lífið Þetta þrennt hefði ég viljað vita tvítugur Áskorun Iceguys reyndu við Hasselhoff Bíó og sjónvarp Skaut sig óvart í fótinn Bíó og sjónvarp Áhrifavaldur lést í mótorhjólaslysi Lífið Útúrkókaður lögreglumaður stökk á mann sem var að slá garðinn um nótt Lífið Góðir straumar á Straumi Menning Luku þrjátíu ára hjónabandi með skilnaðarferð Lífið Fleiri fréttir Safna í minningu Johns Snorra fyrir munaðarlaus börn Ólafía Þórunn orðin þriggja barna móðir „Erum bara vinir“ Áhrifavaldur lést í mótorhjólaslysi Útúrkókaður lögreglumaður stökk á mann sem var að slá garðinn um nótt Arnór Sig kominn á fast Stjörnulífið: Fáklædd og frjáls Mistök að hafa klætt sig upp sem heimilislausa Robert Irwin nýtti fríið og ferðaðist um Ísland Vonlaust að gagnrýna vini sína Luku þrjátíu ára hjónabandi með skilnaðarferð Krakkatía vikunnar: Hrekkjavaka, þjóðtrú og goðafræði Hnýta í Trump í nýrri herferð: „Velkomin til skítalands“ Níutíu og einn meistari útskrifaðist Andri Snær keppir við Elizabeth Holmes Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“ Hrekkjavökukort sem sé drifið áfram af samfélaginu Nýjar upplýsingar um morðið á Hrafnhildi Lilju átján árum síðar Fréttatía vikunnar: Brasilía, Ofurskálin og Pútín Halla forseti var ekki heima þegar hann loks skilaði sér á leiðarenda Halla bað sáran áhrifavald um að ofgera sér ekki fyrir samfélagsmiðla Ráðherrar brugðu á leik og tóku lagið Nablinn hættur á leikskóla Keppast um að minnast Stewarts Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Patrick Stewart látinn Erna Mist og Þorleifur selja „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Missti röddina á ögurstundu Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Sjá meira
Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“