Segir að Norður-Kóreumenn verði að sýna samningsvilja Höskuldur Kári Schram og Þórdís Valsdóttir skrifa 19. apríl 2018 21:54
Donald Trump forseti Bandaríkjanna segir að Norður-Kóreumenn verði að sýna samningsvilja á komandi leiðtogafundi ríkjanna. Að öðrum kosti verði fundinum aflýst. Fundurinn verður sögulegur en þetta verður í fyrsta sinn sem sitjandi forseti Bandaríkjanna hittir leiðtoga Norður-Kóreu. Samskipti landanna hafa verið ansi stirð á undanförnum árum vegna eldflauga- og kjarnorkutilrauna Norður-Kóreumanna. Bandaríkjamenn hafa beitt viðskiptaþvingunum til að reyna að fá stjórnvöld í Pjongjang til að láta af þessum tilraunum, en hingað til hafa þær ekki skilað árangri. Trump hefur verið í opinberri heimsókn í Japan en búist er við því aðfundurinn verði haldinn í lok næsta mánaðar „Vonandi verður þessi fundur mjög árangursríkur og við hlökkum til hans. Það væri gríðarlega mikilvægt fyrir Norður-Kóreu og allan heiminn. Svo við munum gera allt sem mögulegt er til að ná árangri fyrir allan heiminn, ekki bara fyrir Bandaríkin, eða Suður-Kóreu, eða Norður-Kóreu eða Japan, heldur fyrir allan heiminn,“ segir Donald Trump. Trump segir að Bandaríkin leggi höfuðáherslu á kjarnorkuafvopnun Norður-Kóreu. „Ef ég held að þetta verði fundur sem gefur lítið af sér, þá förum við ekki. Ef fundurinn, þegar ég verð þar, ber ekki árangur, mun ég kurteislega yfirgefa fundinn og við höldum áfram því sem við erum að gera eða hvað sem það er sem við munum halda áfram. En eitthvað mun gerast,“ segir Trump.
Mest lesið Of þung en annars hraust á Ozempic Innlent Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Innlent Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Segja grafalvarlegt mál að fresta atkvæðagreiðslu Innlent „Engu okkar er boðið að koma þarna og sjá“ Innlent Myndband sýnir árás Diddy Erlent Slagsmálahundar afþökkuðu aðstoð lögreglu Innlent Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Innlent „Það er miður að það falli til kostnaður vegna þessa“ Innlent Fleiri fréttir Myndband sýnir árás Diddy Færeyingar felldu frumvarp um fóstureyðingar Þrjátíu ár fyrir árásina á mann þingforsetans Segir Rússa ekki hafa í hyggju að taka Kharkív Viðtal á Stöð 2 kveikir upp í færeyskum stjórnmálum Reyndi að kveikja í bænahúsi gyðinga og var skotinn til bana Spánverjar neita skipi með vopn innanborðs um að leggja að bryggju „Einfari“ ákærður fyrir tilræðið við Fico Hver er Robert Fico? Neyðarástandi lýst yfir á Nýju-Kaledóníu eftir miklar óeirðir Ágreiningur innan stjórnarinnar brýst upp á yfirborðið Hægriflokkar ná saman um myndun ríkisstjórnar Samið um kappræður í júní og september Fico ekki talinn í lífshættu Þróun ES-30 flugvélarinnar flutt frá Svíþjóð til Kaliforníu Þetta er vitað um árásarmanninn Biden skorar á Trump Forsætisráðherra Slóvakíu í lífshættu eftir skotárás Þverpólitískar tillögur um viðbrögð vegna gervigreindar FIFA byrjað að vinda ofan af umbótum eftir spillingarhneykslið Fulltrúar Talíbana á ráðstefnu í Ósló Fyrsta opinbera málverkið af konunginum Karli III afhjúpað í gær Gróðureldar ógna olíuvinnslumiðstöð í Kanada Gríðarleg leit gerð að mönnum sem frelsuðu fanga í Frakklandi Skriðdrekar Ísraelshers komnir inn í íbúðahverfi í Rafah Framámaður AfD sektaður fyrir að nota slagorð nasista Vill bjóða NATO að byggja nýjan flugvöll í Færeyjum Þorir að veðja bjór á að hún verði áfram forsætisráðherra Lokað á grein um barnadráp í Bretlandi Drápu fangaverði og hjálpuðu fanga að strjúka Sjá meira