Sarkozy handtekinn fyrir að taka við peningum frá Gaddafi Samúel Karl Ólason skrifar 20. mars 2018 09:36 Nicolas Sarkozy var forseti Frakklands 2007 til 2012. Vísir/AFP
Nicolas Sarkozy, fyrrverandi forseti Frakklands, hefur verið handtekinn og yfirheyrður vegna gruns um að einræðisherrann Muammar Gaddafi hafi fjármagnað kosningabaráttu hans árið 2007. Rannsókn hefur staðið yfir frá 2013 og er þetta í fyrsta sinn sem forsetinn fyrrverandi er yfirheyrður. Þetta kemur fram í fjölmiðlum í Frakklandi.Fyrrverandi starfsmaður hans, Alexandre Djouhri, var handtekinn vegna málsins í London fyrr á árinu og sleppt gegn tryggingu. Embættismenn frá Líbýu hafa haldið því fram að Gaddafi hafi í laumi komið allt að 50 milljónum Evra til Frakklands. Samkvæmt frétt France 24 var hámarksstuðningur við framboð 21 milljón á þessum tíma.Viðskiptamaðurinn Ziad Takieddine sagði árið 2016 að hann hefði ferðast frá Líbýu til Frakklands árin 2006 og 2007 og hann hefði komið sjö milljónum Evra í reiðufé til Sarkozy og kosningastjóra hans Claude Guéant. Forsetinn fyrrverandi, sem var í embætti 2007 til 2012, hefur ávalt neitað þessum ásökunum. Skömmu eftir að Sarkozy varð forseti bauð hann Gaddafi til Frakklands þar sem vel var tekið á mótin honum. Árið 2011 var Frakkland hins vegar í forsvari fyrir aðgerðir Atlantshafsbandalagsins við að hjálpa uppreisnarmönnum að koma Gaddafi frá völdum.
Mest lesið Arnar Þór ýjar að stofnun nýs stjórnmálaflokks Innlent Netanyahu fastur milli steins og sleggju Erlent Harmar atvik þar sem konu var sagt að hún væri búin að kjósa Innlent Fylgjast grannt með hraunflæðinu Innlent Fyrsta konan og gyðingurinn til að verða forseti Mexíkó Erlent Seinkun á tölum ekki að ástæðulausu Innlent Selenskí óskar Höllu Tómasdóttur til hamingju Innlent Tveir skotnir til bana í Norrköping Erlent Ríkisstjórnin á erfiða daga fyrir höndum Innlent Vítisvist á Unglingaheimili ríkisins Innlent Fleiri fréttir Tveir skotnir til bana í Norrköping Netanyahu fastur milli steins og sleggju Fyrsta konan og gyðingurinn til að verða forseti Mexíkó Fjöldi loftárása á orkuver víðsvegar um Úkraínu Friðartillaga Ísraela sem Biden kynnti virðist fá hljómgrunn „Við búum í fasísku ríki“ Segjast hafa skotið á flugmóðurskip eftir loftárásir Þarf að greiða fyrrverandi 137 milljarða í kjölfar framhjáhalds Ólíklegt að Trump fari í fangelsi Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Bakhjarlar Úkraínu leyfa árásir í Rússlandi Heimilar notkun vopna frá Bandaríkjunum á rússneska grund Trump sakfelldur fyrir skjalafals í þagnargreiðslumáli Veita katalónskum aðskilnaðarsinnum sakaruppgjöf Stígur ekki til hliðar vegna umdeildra fána Gæsir og steggir að buga bæjaryfirvöld sem banna nekt og typpabúninga Svörtum vísað frá borði þegar kvartað var undan líkamslykt Ísraelsmenn taka yfir landamærin að Egyptalandi Flugvélin féll um 54 metra á fimm sekúndum Kviðdómendur leggjast undir feld í dag Gefa Úkraínumönnum eftirlitsflugvélar Útnefna Biden rafrænt til að koma honum örugglega á kjörseðilinn Fær ekki að bjóða sig fram fyrir Verkamannaflokkinn Þingmeirihluti ANC í hættu í Suður-Afríku Íbúar varaðir við rusl- og skítabelgjum frá Norður-Kóreu Segja árásir og aðgerðir Ísrael enn innan „rauðu línanna“ De Niro kallaði Trump skrímsli fyrir utan dómshúsið „Við höfum ekkert“ Ógiltu neitunarvald forseta til að koma fjölmiðlalögum í gegn Biðst afsökunar á ummælum um „faggaskap“ Yfir fimmtíu stig í hitabylgju í Pakistan Sjá meira