Engin kaupmáttaraukning til eldri borgara Hrafn Magnússon skrifar 1. mars 2018 07:00 Um síðustu áramót hækkaði lífeyrir almannatrygginga um 4,7% eða sem svaraði hækkun á vísitölu neysluverðs. Í lögunum um almannatryggingar segir að eftirlaun skuli breytast árlega og taka mið af launaþróun, þó þannig að þau hækki aldrei minna en verðlag samkvæmt vísitölu neysluverðs. Þetta ákvæði laganna hefur verið þverbrotið oftar en einu sinni á Alþingi. Þessu til áréttingar sendi stjórn Landssambands eldri borgara frá sér ályktun og benti á að þessi hækkun væri ekki í samræmi við launaþróun í landinu. Vísitala launa hefði hækkað á sama tímabili um 7,2%. Frá því núverandi hagvaxtarskeið hófst í ársbyrjun 2011 hafa ráðstöfunartekjur á mann vaxið um 50% á sama tíma og kaupmáttur á mann hefur vaxið um 23%. Þetta kemur fram í skýrslu Samtaka atvinnulífsins frá því í október á síðasta ári. Með því að tengja lífeyri almannatrygginga við vísitölu neysluverðs njóta eldri borgarar ekki góðs af lækkun vöruverðs, t.d. hjá Costco og Bónus. Það byggist á samspili vísitölu neysluverðs og greiðslum frá Tryggingastofnun ríkisins. Því lægra vöruverð, þeim mun lægri lífeyrir frá almannatryggingum. Lífeyrir almannatrygginga ætti að vísu að tryggja að eldri borgarar hafi eitthvað til hnífs og skeiðar, en það er ekki nóg. Eldri borgarar telja að þeir eigi ekki síður en aðrir landsmenn að njóta þeirrar kaupmáttaraukningar sem verið hefur hér á landi á undanförnum árum.Höfundur er í í kjaranefnd Landssambands eldri borgara Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Má Katrín Jakobsdóttir bjóða sig fram? Jón Ólafsson Skoðun Halldór 01.06.2024 Halldór Yfirtaka orðræðunnar (e. hijacking) Sóley Tómasdóttir Skoðun Dóttir mín – uppgjör eineltis Ragnheiður Harpa Sveinsdóttir Skoðun Hvort vilt þú Höllu Tómasdóttur eða Katrínu? Björn Björnsson Skoðun Svona getum komið í veg fyrir að Katrín vinni Björn B. Björnsson Skoðun Hatur og fyrirlitning Einar Scheving Skoðun Land míns föður, land minnar móður, landið mitt Jón Gnarr Skoðun Barnapíu á Bessastaði! Karl Sigurðsson Skoðun Persónan Katrín Jakobsdóttir Sólveig Hildur Björnsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Ég kýs Michael Jordan (Höllu Hrund Logadóttur) Óskar Arnarson skrifar Skoðun Ástæður til að kjósa Jón Gnarr Helgi Hrafn Gunnarsson skrifar Skoðun Viddi, Bósi Ljósár og Baldur Þórhalls Heimir Hannesson skrifar Skoðun Gerum það! Stefán Hilmarsson skrifar Skoðun Bónaður brjóstkassi og barnaafmæli Þorbjörg Marínósdóttir skrifar Skoðun Gleðilegan kosningadag kæru landsmenn Snorri Ásmundsson skrifar Skoðun Hæfasti einstaklingurinn Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Verðmætin og sköpunarkraftur sá sem í mannauð okkar býr Pétur Már Halldórsson skrifar Skoðun Hvort vilt þú Höllu Tómasdóttur eða Katrínu? Björn Björnsson skrifar Skoðun Svona velur þú þér forseta í dag Kolbeinn Karl Kristinsson skrifar Skoðun Takk, Katrín Guðrún Hrefna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Hatur og fyrirlitning Einar Scheving skrifar Skoðun Samherjar Hafþór Reynisson skrifar Skoðun Að hitta hetjuna sína Gréta Kristín Ómarsdóttir skrifar Skoðun Einstakt tækifæri Þóra Valný Yngvadóttir skrifar Skoðun Um afrekskonuna Katrínu Tómas Ísleifsson skrifar Skoðun Land míns föður, land minnar móður, landið mitt Jón Gnarr skrifar Skoðun Óskað eftir forseta sem færir ungu fólki völd Valgerður Eyja Eyþórsdóttir skrifar Skoðun Með ósk um velgengni, Halla Hrund Viðar Hreinsson skrifar Skoðun Ég styð Höllu Hrund Logadóttur Þórólfur Árnason skrifar Skoðun Arnar Þór Jónsson Meyvant Þórólfsson skrifar Skoðun Að skreyta sig með stolnum fjöðrum Sema Erla Serdaroglu skrifar Skoðun Opið bréf til Jóns Ólafssonar heimspekings Tómas Ísleifsson skrifar Skoðun Persónan Katrín Jakobsdóttir Sólveig Hildur Björnsdóttir skrifar Skoðun Þjóðaröryggi Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun Tóbak markaðssett fyrir ungt fólk Guðlaug B. Guðjónsdóttir skrifar Skoðun Forsetinn, NATÓ, ýsan og blokkin Guðfinnur Sigurvinsson skrifar Skoðun „Svona er á síld“ Stefán Hilmarsson skrifar Skoðun Aldrei hitta hetjurnar þínar Skarphéðinn Guðmundsson skrifar Skoðun Yfirtaka orðræðunnar (e. hijacking) Sóley Tómasdóttir skrifar Sjá meira
Um síðustu áramót hækkaði lífeyrir almannatrygginga um 4,7% eða sem svaraði hækkun á vísitölu neysluverðs. Í lögunum um almannatryggingar segir að eftirlaun skuli breytast árlega og taka mið af launaþróun, þó þannig að þau hækki aldrei minna en verðlag samkvæmt vísitölu neysluverðs. Þetta ákvæði laganna hefur verið þverbrotið oftar en einu sinni á Alþingi. Þessu til áréttingar sendi stjórn Landssambands eldri borgara frá sér ályktun og benti á að þessi hækkun væri ekki í samræmi við launaþróun í landinu. Vísitala launa hefði hækkað á sama tímabili um 7,2%. Frá því núverandi hagvaxtarskeið hófst í ársbyrjun 2011 hafa ráðstöfunartekjur á mann vaxið um 50% á sama tíma og kaupmáttur á mann hefur vaxið um 23%. Þetta kemur fram í skýrslu Samtaka atvinnulífsins frá því í október á síðasta ári. Með því að tengja lífeyri almannatrygginga við vísitölu neysluverðs njóta eldri borgarar ekki góðs af lækkun vöruverðs, t.d. hjá Costco og Bónus. Það byggist á samspili vísitölu neysluverðs og greiðslum frá Tryggingastofnun ríkisins. Því lægra vöruverð, þeim mun lægri lífeyrir frá almannatryggingum. Lífeyrir almannatrygginga ætti að vísu að tryggja að eldri borgarar hafi eitthvað til hnífs og skeiðar, en það er ekki nóg. Eldri borgarar telja að þeir eigi ekki síður en aðrir landsmenn að njóta þeirrar kaupmáttaraukningar sem verið hefur hér á landi á undanförnum árum.Höfundur er í í kjaranefnd Landssambands eldri borgara