Útflutningstekjur ferðaþjónustunnar mun meiri en sjávarútvegs Sylvía Hall skrifar 2. mars 2018 17:30 Ferðamenn á Keflavíkurflugvelli í vikunni þegar miklar seinkanir urðu á flugi vegna veðurs. vísir/eyþór
Þjónustuútflutningur færi minnkandi á milli ára ef ekki væri fyrir aukningu í ferðaþjónustu og hefði hann dregist saman um 2,3% á árunum 2016 til 2017. Þetta kemur fram í nýrri Hagsjá Landsbankans. Í Hagsjánni segir að verðmæti þjónustuútflutnings hafi tvöfaldast milli áranna 2009 og 2017 og það megi einungis rekja til ferðaþjónustunnar. Þannig hafi verðmæti þjónustuútflutnings farið úr 332 milljörðum króna upp í 673 milljarða og nemur aukningin því 341 milljarði. Á tímabilinu hefur útflutningur ferðaþjónustu aukist meira eða um 348 milljarða króna. Eru útflutningstekjur hennar nú því tæplega þrefalt meiri en sjávarútvegsins í dag. Innflutningur þjónustu jókst um 2,5% á síðasta ári og eru helstu skýringar þess mikil fjölgun á utanlandsferðum Íslendinga. Styrking krónunnar og aukinn kaupmáttur landsmanna spila þar stórt hlutverk. Þjónustujöfnuður var jákvæður um 274 ma. króna á síðasta ári og jókst afgangur um 6,5% á milli ára. Þetta er hæsti afgangur sem mælst hefur hér á landi.
Mest lesið Trump-tollarnir hafa tekið gildi Viðskipti innlent Fyrsta íslenska grænkera ostagerðin í hættu Viðskipti innlent Ráðin framkvæmdastjóri Magio – viðburðasmiðju Viðskipti innlent Ísland klemmist á milli í alþjóðlegu tollastríði Viðskipti innlent Alaska Airlines hefur daglegt flug til Keflavíkur næsta sumar Viðskipti innlent Vonbrigði með makrílinn en síldin og loðnan veki von Viðskipti innlent Þegar þreyttir starfsmenn mæta til vinnu eftir frí Atvinnulíf Á ég að greiða inn á lánið eða spara? Viðskipti innlent Trúa varla að tollahækkanirnar séu að skella á Viðskipti innlent Vefur og app Íslandsbanka lágu niðri Viðskipti innlent Fleiri fréttir Trump-tollarnir hafa tekið gildi Ísland klemmist á milli í alþjóðlegu tollastríði Vonbrigði með makrílinn en síldin og loðnan veki von Ráðin framkvæmdastjóri Magio – viðburðasmiðju Trúa varla að tollahækkanirnar séu að skella á Alaska Airlines hefur daglegt flug til Keflavíkur næsta sumar Vefur og app Íslandsbanka lágu niðri Tímabundin dreifing á sjónvarpsefni Sýnar hjá Símanum Hækkun tolla eins og þruma úr heiðskíru lofti Forstjóraskipti hjá Ice-Group Kísiltollar gætu vel endað fyrir gerðardómi Hvalur hf. stefnir íslenska ríkinu Arion hagnaðist um tíu milljarða á öðrum fjórðungi Ferðum Play til London, Parísar og Berlínar „sjálfhætt“ Festi hagnast umfram væntingar Þota Play komin úr viðgerð eftir skemmdir vegna hagléls Evrópa verði upp á Kína komin verði af tollunum Sigurður viðskiptastjóri innviðalausna hjá Ofar Hagnaður minnkar um 38 prósent og arðgreiðsla óákveðin Funda með ráðherra vegna tollanna: „Ég ætla ekki að setjast í neitt dómarasæti“ Á ég að greiða inn á lánið eða spara? Loksins, mathöllin og fleiri staðir fá nýja rekstraraðila „Við erum að bæta við atvinnustoð í samfélaginu“ Kristján og Leó kaupa Landsbankahúsið á tæpa þrjá milljarða Sjómönnum sagt upp: Skipulagsbreytingar vegna veiðigjalda Vaxtalækkun í ágúst sé nánast útilokuð Opnuðu loks Hygge eftir 245 daga bið Verðbólgan hjaðnar á ný Gáfust upp á Facebook og opna verslun fyrir notaðar íþróttavörur Endurskipuleggja reksturinn „í vinsemd og virðingu“ Sjá meira