Frábær spilamennska Ólafíu skilaði henni í gegnum niðurskurðinn Dagur Lárusson skrifar 28. janúar 2018 13:30 Ólafía spilaði vel í dag. vísir/Ernir
Ólafía Þórunn Kristinnsdóttir er að öllum líkindum búin að tryggja sig inn á lokahringinn á Pure Silk mótinu á LPGA-mótaröðunni en hún var rétt í þessu að klára sinn annan hring. Hún hóf hringinn í gær en þurfti að hætta leik eftir tólf holur vegna myrkurs. Hún hafði fengið fimm skolla á fyrstu ellefu holunum en lauk svo deginum á fugli. Ólafía hélt uppteknum hætti þegar keppni hófst að nýju í morgun og spilaði frábært golf. Hún náði alls fjórum fuglum á síðustu sex holunum sínum. Enn eiga nokkrir kylfingar eftir að ljúka keppni en eins og stendur þá er afar líklegt að Ólafíu komist í gegnum niðurskurðinn en niðurskurðarlínan er sem stendur við sex högg yfir pari en Ólafía er á samtals fjórum yfir pari eftir hringina tvo. Hún spilaði annan hringinn á piari. Lokahringurinn er spilaður í kvöld og er í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport 4 klukkan 20:00.
Golf Tengdar fréttir Ólafía á enn möguleika Ólafía gat spilað tólf holur í gær áður en leik var hætt vegna myrkurs. 28. janúar 2018 10:15 Mest lesið Bónus frá ríkinu, bannaða bandið og aftur hátíð fyrir Dag og hans menn Handbolti Chelsea tók fyrirliða Strasbourg til baka Enski boltinn Kveður Skagafjörðinn og flytur á Skagann Körfubolti Féll á lyfjaprófi rétt fyrir Ólympíuleika í heimalandinu Sport Hin efnilega Emelía lánuð til Kaupmannahafnar Fótbolti Pytlick hafði enga lyst á pönnukökum í Ráðhúsinu Handbolti Stefán Ingi seldur til Hollands fyrir metverð Fótbolti Biður Dag afsökunar Handbolti Leynast öflugar íslenskar skyttur einhvers staðar? Handbolti Gísli Þorgeir og Viktor Gísli á toppnum en Óðinn í öðru sæti Handbolti Fleiri fréttir LIV-stjörnur þekkjast ekki boð PGA-manna Koepka snýr aftur og öðrum LIV-stjörnum býðst að fylgja honum Kylfingur tók áhættuna og upplifði versta golfdag lífsins McIlroy miður sín yfir ummælum áhorfenda um dóttur hans Efnilegur kylfingur meðal þeirra sem létust í brunanum í Sviss Sjá meira
Ólafía á enn möguleika Ólafía gat spilað tólf holur í gær áður en leik var hætt vegna myrkurs. 28. janúar 2018 10:15