Spá því að liðin sem misstu íslensku þjálfarana berjist um EM-gullið Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 12. janúar 2018 14:27 Dagur Sigurðsson gerði Þjóðverja að Evrópumeisturum 2016. Vísir/Getty
Íslenska karlalandsliðið í handbolta endar í þrettánda sæti á Evrópumótinu í Króatíu ef marka má spá handboltasíðunnar handball-planet.com. Það verða hinsvegar Danmörk og Þýskaland sem berjast um Evrópumeistaratitilinn en þeim er spáð efstu tveimur sætunum í þessari spá, Danmörku í 1. sæti og Þýskalandi í 2. sæti. Þetta er fyrsta stórmótið síðan að umrædd lið, Danmörk og Þýskaland, misstu íslensku þjálfarana sem höfðu báðir unnið stórmótagull árið 2016. Dagur Sigurðsson gerði Þýskaland að Evrópumeisturum 2016 og Danir unnu Ólympíugull undir stjórn Guðmundar Guðmundssonar í Ríó 2016. Handball-planet.com spáir því að íslenska liðið komist ekki upp úr sínum riðli þar sem liðið mætir heimamönnum í Króatíu auk Svía og Serba. Svíar, sem spila undir stjórn Kristjáns Andréssonar á EM, er spáð áttunda sætinu en lið Austurríkis, sem Patrekur Jóhannesson þjálfar, er spáð sextánda og síðasta sæti.Spá handball-planet.com fyrir lokastöðu EM 2108: 1. sæti - Danmörk 2. sæti - Þýskaland 3. sæti - Noregur 4. sæti - Króatía 5. sæti - Frakkland 6. sæti - Spánn 7. sæti - Slóvenía 8. sæti - Svíþjóð 9. sæti - Ungverjaland 10. sæti - Serbía 11. sæti - Makedónía 12. sæti - Hvíta-Rússland 13. sæti - Ísland 14. sæti - Svartfjallaland 15. sæti - Tékkland 16. sæti - Austurríki
EM 2018 í handbolta Mest lesið Pálmi í ótímabundið leyfi Íslenski boltinn Sá húsið sitt brenna til kaldra kola Körfubolti Erfitt að heyra hvað Orri hefur þjáðst Fótbolti Shakhtar - Breiðablik | Tekst Blikum að stríða stórliði? Fótbolti Eigandi Nott.Forest ákærður fyrir tengsl við glæpagengi Sport Stelpurnar okkar fá ekki leiki vegna sparnaðar Fótbolti Donald Trump að fá friðarverðlaun frá FIFA? Fótbolti Fylgist spenntur með Viktori: „Þetta er með ólíkindum“ Fótbolti Endurkoma ársins: Á Norðurlandamót aðeins ellefu mánuðum eftir hálsbrot Sport Hlýnun jarðar á að hafa mikil áhrif á maraþonhlaup í heimnum Sport Fleiri fréttir Fram - Valur | Arnór byrjar á meisturunum Greint frá ráðningu á vef nýja þjálfarans Víðir vann „diplómatískan sigur“ á þýska handknattleikssambandinu Magdeburg skoraði 45 en lærisveinar Guðjóns Vals úr leik Lovísa með níu í góðum sigri Allar landsliðskonurnar komust á blað Bikarmeistararnir fara norður Björgvin Páll hafi þaggað niður í efasemdaröddum Lýsir eftir leiðtoga íslenska landsliðsins Alfreð klæddist kvennatreyjunni á leiknum við Ísland Forðuðu sér frá bráðsmitandi óléttu í Fram Dönsk landsliðskona eignaðist barn tólf vikum fyrir tímann Uppgjörið: Þýskaland - Ísland 29-31 | Svöruðu skellinum með frábærum sigri Kærastan tók eftir því að eitthvað var að KA/Þór gerði jafntefli við botnliðið Valskonur unnu 24 marka sigur og ÍR upp í annað sætið „Fannst þetta verða svartara og svartara“ Alfreð hissa: Veit að Íslendingar geta mun betur Andri kallaður inn í hópinn fyrir meiddan Hauk Arnór Snær snýr aftur heim Besta handboltadeild heims missir aðalstyrktaraðila sinn Grafalvarleg staða: „Þurfum að fara í sársaukafullar aðgerðir“ ÍR áfram eftir sigur í Mosfellsbæ Uppgjörið: Þýskaland - Ísland 42-31 | Þrot í Þýskalandi Tilkynnti um óléttu og nýjan samning á sama tíma Patrekur hættur eftir dapurt gengi Stjörnunnar Rekinn fyrir ummæli sín um krabbameinssjúka handboltagoðsögn Janus Daði myndaður í heimsókn hjá Barcelona Epicbet sýni handboltann í leyfisleysi: „Enda ólöglegar síður“ Teitur inn í landsliðið Sjá meira