Markvörður Slóvaka skoraði sigurmarkið í uppbótartíma og gerði út um vonir Íslands Anton Ingi Leifsson skrifar 11. september 2018 17:38 Albert fagnar fyrra marki sínu í dag. vísir/vilhelm
Draumur íslenska U21-árs landsliðsins um að komast í umspilið um laust sæti á EM U21 2019 er úr þeirra höndum eftir að liðið tapaði 3-2 gegn Slóvakíu í Vesturbænum. Leikið var á Alvogen-vellinum í Vesturbæ Reykjavíkur í kvöld og voru Slóvakarnir sterkari framan af. Þeir fengu meðal annars vítaspyrnu sem Aron Snær Friðriksson varði. Það voru hins vegar Íslendingar sem komust yfir. Albert Guðmundsson lék þá laglega á varnarmann og hamraði boltanum í nærhornið. Óverjandi fyrir markvörð Slóvaka og strákarnir yfir í hálfleik. Ungu strákarnir okkar þurftu á sigri að halda til þess að halda baráttunni um umpilssæti vel á lífi en það dróst úr þeim vonum er Laszlo Benes skoraði með góðu skoti á 58. mínútu. Fjörinu var heldur betur ekki lokið. Slóvakarnir virtust vera að tryggja sér sigurinn með marki Tomás Vestenický í uppbótartím en svo var ekki. Ísland fékk vítaspyrnu skömmu síðar eftir að Tryggvi Hrafn Haraldsson var tekinn niður. Albert fór á punktinn og skoraði af miklu öryggi og flestir héldu að lokatölurnar urðu 2-2. Slóvakarnir voru hins vegar ekki hættir. Þeir geystust upp og Aron Snær Friðriksson varði afar vel í horn. Upp úr horninu skoraði markvörður þeirra, Marek Rodák, sigurmark þeirra eftir að boltinn féll niður til hans í teignum. Lokatölur ótrúlegur 3-2 sigur Slóvaka sem eru því enn á lífi í baráttunni um umspil á meðan íslenska liðið hefur ekki að neinu að keppa í síðustu tveimur leikjunum; gegn Spáni og Norður-Írlandi.
Fótbolti Mest lesið Óhuganlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Gísli kom af fjöllum þegar talið barst að Ljungberg Sport Fjórtán ára drengur gaf sig fram við lögreglu Sport Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sport Þjálfari Hákonar grét eftir leik Fótbolti Fleiri fréttir Annar sigur Everton á Newcastle á innan við viku Thelma með stoðsendingu og er Svíþjóðarmeistari Óhuganlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Ronaldo var skilinn eftir heima Fer frá Stjörnunni í FH Man Utd með nærri 25 prósent líkur á falli Fimmta árið í röð eru Noregsmeistararnir með eina íslenska í liðinu Leikmaður Freys varð fyrir kynþáttaníði frá mótherja Aston Villa hættir við málsókn gegn Carragher Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Ólíklegt að leikmenn Man United séu með fallákvæði í samningum Orða varnarmann Barcelona við Manchester United Þjálfari Hákonar grét eftir leik Iraola mun segja Isak að láta sig falla í framtíðinni „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Messi tryggði Inter Miami mikilvægan sigur Tíunda markið í húsi hjá Sveindísi Jane í lokaleiknum Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Markvörður ársins náði að stöðva Orra Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Góðar fréttir fyrir landsliðið og Mikael Egill á uppleið Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Júlíus með ný skilaboð til landsliðsþjálfarans Real heldur sig nálægt Barcelona Eiður fann til með Liverpool Sjá meira