Segir gagnrýnina vera óvirðingu við Emery Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 15. ágúst 2018 17:00 Unai Emery, nýr stjóri Arsenal, í fyrsta leiknum um helgina. Vísir/Getty
Eftir 2-0 tap Arsenal gegn Mancester City í fyrstu umferð ensku úrvalsdeildarinnar hefur Unai Emery, nýr knattspyrnustjóri Arsenal, fengið mikla gagnrýni fyrir leikskipulag sitt. Sam Allardyce, fyrrum stjóri Everton, sagði á mánudag að það væri „heimskulegt“ af Emery að reyna að spila út úr vörninni gegn liði eins og Manchester City. Markmaðurinn Petr Cech reyndi fleiri sendingar í leiknum á sunnudag heldur en í öllum leikjum sínum á síðasta tímabili. Hann tapaði boltanum 11 sinnum í leiknum. Liam Rosenior, fyrrum fótboltamaður sem nú er pistlahöfundur fyrir Guardian, sagði í spjallþættinum The Debate á Sky Sports að gagnrýnin á Emery væri óvirðing við nýja stjórann. „Emery hefur líklega farið til forráðamanna Arsenal og sagt að þetta sé leikstíll hans. Þetta er það sem ég get gefið ykkur, ekki bara í eitt ár heldur þrjú, fjögur eða fimm,“ sagði Rosenior.„Þetta Arsenal lið er búið að vera í vandræðum í nokkur ár og það tekur tíma að byggja upp eitthvað nýtt. Ef þú yfirgefur þá uppbyggingu strax þá ertu nú þegar búinn að tapa. Það tók Pep Guardiola tíma að fá Manchester City til þess að spila eins og hann vildi.“ „Emery kemur inn til Arsenal og hann er að reyna að spila á svipaðan hátt. Hann vann titla með Sevilla, vann Evrópudeildina þrisvar í röð, og mér finnst það óvirðing að lesa yfir honum fyrir það að reyna að gera það sama og Jurgen Klopp og Pep Guardiola hafa fengið að gera áður.“ „Sam Allardyce var að hrauna yfir stjóra sem var að stýra sínum fyrsta leik á móti besta liði deildarinnar og reyna að koma sínum leikstíl og hugarfari að hjá nýju félagi,“ sagði Rosenior. Næsti leikur Arsenal er ekki mikið auðveldara verkefni, Emery fer með sína menn á Stamford Bridge og mætir Chelsea í Lundúnaslag á laugardag.
Enski boltinn Tengdar fréttir Allardyce kennir Emery um: „Heimskulegt að spila út úr vörninni“ Sam Allardyce kennir Unai Emery um tap Arsenal gegn Manchester City í gær. Gamalreyndi stjórinn segir nýja manninn í brúnni hjá Arsenal hafa verið með ranga leikaðferð. 13. ágúst 2018 12:30 Emery: Tókum meiri ábyrgð í seinni hálfleiknum Unai Emery, stjóri Arsenal, segist vongóður þrátt fyrir nokkuð sannfærandi tap gegn Manchester City í dag. 12. ágúst 2018 23:30 Nýtt tímabil, sömu vandamál Arsenal tapaði 0-2 á heimavelli fyrir Englandsmeisturum Manchester City í fyrsta deildarleik liðsins undir stjórn Unais Emery. Miðað við frammistöðu Arsenal í gær á spænski stjórinn enn mikið verk fyrir höndum. 13. ágúst 2018 13:00 Mest lesið Haaland stakk af og fagnaði ekki með fólkinu Fótbolti Hafþór Júlíus gefst ekki upp þrátt fyrir vonbrigðin Sport „Skil ekki hvernig menn geta flaggað á eða séð eitthvað sem gerist ekki“ Íslenski boltinn Spila að eigin ósk í sömu litum og í leiknum fræga með „hendi guðs“ Fótbolti Hló að Haaland: Kom út úr vélinni með uppstoppaðan þvottabjörn Fótbolti „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Enski boltinn Kastaði skó í mótherja í miðjum leik Körfubolti Lögreglan hefur hafið rannsókn á andláti HM-leikmannsins Fótbolti Valur bætir við sig fyrrum markadrottningu úr Lengjudeildinni Íslenski boltinn Dagskráin í dag: Umferðin klárast og allt gert upp í Stúkunni Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Xabi Alonso vill halda Fernandez hjá Chelsea Nýr stjóri Liverpool segist þurfa fleiri leikmenn United kaupir Andrey Santos frá Chelsea Villa að stela Manzambi af Newcastle Éderson ekki á leiðinni en Tielemans í viðræðum við United Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Sjá meira
Allardyce kennir Emery um: „Heimskulegt að spila út úr vörninni“ Sam Allardyce kennir Unai Emery um tap Arsenal gegn Manchester City í gær. Gamalreyndi stjórinn segir nýja manninn í brúnni hjá Arsenal hafa verið með ranga leikaðferð. 13. ágúst 2018 12:30
Emery: Tókum meiri ábyrgð í seinni hálfleiknum Unai Emery, stjóri Arsenal, segist vongóður þrátt fyrir nokkuð sannfærandi tap gegn Manchester City í dag. 12. ágúst 2018 23:30
Nýtt tímabil, sömu vandamál Arsenal tapaði 0-2 á heimavelli fyrir Englandsmeisturum Manchester City í fyrsta deildarleik liðsins undir stjórn Unais Emery. Miðað við frammistöðu Arsenal í gær á spænski stjórinn enn mikið verk fyrir höndum. 13. ágúst 2018 13:00