Fyrrverandi framkvæmdastjóra NATO neitað um endurnýjun á rafrænni ferðaheimild til Bandaríkjanna Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 25. júní 2018 11:49 Javier Solana. vísir/getty
Bandarísk yfirvöld hafa meinað Javier Solana, fyrrverandi framkvæmdastjóra NATO og fyrrverandi utanríkismálastjóra Evrópusambandsins, að koma til Bandaríkjanna á rafrænni ferðaheimild vegna ferðar sem hann fór í til Írans árið 2013. Solana var einn af lykilmönnunum í samningaviðræðum við Írani um kjarnorkuáætlun þeirra. Solana greindi frá því í dag að endurnýjun á rafrænni ferðaheimild hans til Bandaríkjanna, svokölluð ESTA-heimild sem Íslendingar kannast við, hefði verið hafnað í fyrsta skipti. Hann kvaðst ætla að sækja um vegabréfsáritun í staðinn en það ferli er töluvert flóknara en ESTA-umsóknarferlið. Solana er 75 ára gamall og spænskur ríkisborgari. Hann segist telja að málið hafi frekar eitthvað með skrifræði að gera heldur en pólitík. Árið 2016, þegar Barack Obama var enn við völd, voru sett hert skilyrði fyrir því að hleypa fólki sem ferðast hafði til Írans, Íraks, Sudan eða Sýrlands til Bandaríkjanna á rafrænni ferðaheimild. Í staðinn þurfa ferðalangar að sækja um vegabréfsáritun en að því er fram kemur í frétt New York Times geta þeir sem ferðast hafa til Írans sem blaðamenn, hjálparstarfsmenn eða fulltrúar ríkisstjórnar fengið rafræna ferðaheimild til Bandaríkjanna. Solana segist síðast hafa ferðast til Íran árið 2013 þegar hann var viðstaddur athöfn þar sem Hassan Rouhani var settur í embætti forseta. Solana var þá ekki fulltrúi neinnar ríkisstjórnar.
Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Innlent Fleiri fréttir Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Staðfesta heimilisfesti jólasveinsins í Lapplandi „Þeir munu hengja mig“ Sjá meira