Aðstoðarþjálfari ÍBV stígur til hliðar eftir að hafa ráðist á leikmann Tómas Þór Þórðarson skrifar 13. mars 2018 10:46 Eyjamenn brosmildir á gólfinu í Laugardalshöll. Sigurður Bragason er annar frá hægri og Theodór númer 23 í neðri röð. Vísir/Valli
Sigurður Bragason, aðstoðarþjálfari nýkrýndra bikarmeistara ÍBV í handbolta, stígur til hliðar frá öllum störfum innan félagsins eftir líkamsárásina í bikarfögnuði Eyjamanna á sunnudaginn. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá ÍBV, en Sigurður réðst á Theodór Sigurbjörnsson, einn besta leikmann liðsins, þegar liðið var að fagna bikarsigrinum með þeim afleiðingum að stórsá á Theodór sem fékk skurð fyrir ofan vinstra augað. Sigurður gisti fangageymslur vegna atviksins eins og Vísir greindi frá í gær. Í fréttatilkynningu Eyjamanna segir að sátt hafi verið um að Sigurður víki frá störfum, en ákvörðunin er tekin í ljósi undangenginna atburða. Tekið er fram að Sigurður og Theodór hafi náð sáttum „enda félagar til margra ára“ eins og það er orðað. „Við hörmum atburðinn og vonum að stuðningsmenn og velunnarar ÍBV snúi bökum saman félaginu til heilla,“ segir í tilkynningu ÍBV. Sigurður hefur verið einn af aðalmönnunum í handboltanum hjá ÍBV um margra ára skeið, en hann var leikmaður liðsins í mörg ár og markahæsti leikmaður þess áður en Theodór fór upp fyrir hann fyrr á þessari leiktíð. Þá hefur hann verið aðstoðarþjálfari Arnars Péturssonar undanfarin ár.
Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti FH-ingar biðla til bareigenda, presta og trúarleiðtoga Íslenski boltinn Tár féllu í Bakgarðshlaupinu Sport Nokkuð viss um að Íslandsmetið verði slegið Sport „Falleg stund að fá að keppa á móti litla bróður“ Fótbolti Sindri áfram í sextán liða úrslit Körfubolti Finnur til með Arnari Handbolti Sjáðu tvennuna hjá sjóðheitum Andra Lucasi Enski boltinn Fleiri fréttir Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Sjá meira