Tinder gengur út á það að þú sér einstakling af gagnstæðu kyni og velur hvort þú hafir áhuga á einstaklinginum með því að „svæpa“ til hægri eða til vinstri. Ef maður dregur fingurinn til hægri, þá gefur þú til kynna að þú hafi áhuga á manneskjunni aðeins út frá útliti.
Á YouTube-síðunni Jubilee kom á dögunum út myndband þar sem það er reynt að endurskapa stefnumótarapp í raunveruleikanum. Þá stóð maður að nafni Anshul fyrir framan 30 konur og þurfti einfaldlega að velja hvort hann hefði áhuga, beint fyrir framan þær.
Hér að neðan má sjá hvernig útkoman var.