Enn einn stórleikur Ómars fyrir toppliðið Anton Ingi Leifsson skrifar 21. nóvember 2018 21:12 Ómar í leik með íslenska landsliðinu. Hann virðist funheitur sem eru góð tíðindi fyrir Ísland sem keppir á HM í janúar. vísir/ernir
GOG vann eins marks sigur á Skjern, 30-29, í Íslendingaslag í dönsku úrvalsdeildinni í handbolta. Sigurmarkið kom á síðustu sekúndu leiksins. Skjern var þremur mörkum yfir í hálfleik 17-14 en hægt og rólega komust gestirnir en þeir jöfnuðu fyrst metin í 27-27. Sigurmarkið skoraði svo Frederik Bo Andersen úr vítakasti með síðasta skoti leiksins. Óðinn Þór Ríkharðsson komst ekki á blað í liði GOG en samkvæmt tölfræði dönsku úrvalsdeildarinnar skaut hann ekki að marki Skjern. GOG er í þriðja sæti deildarinnar. Björgvin Páll Gústavsson náði ekki að verja eitt af þeim fjórum skotum sem hann fékk á sig í marki Skjern en Tandri Már Konráðsson var ekki í leikmannahópi Skjern sem er í sjöunda sætinu. Vignir Svavarsson skoraði tvö mörk úr tveimur skotum fyrir TTH Holstebro sem vann fimm marka sigur á Skanderborg 29-24. Holstebro er í fjórða sætinu, stigi á eftir GOG. Álaborg er áfram á toppi deildarinnar eftir þriggja marka sigur á SönderjyskE í öðrum Íslendingaslag. Munurinn varð að endingu þrjú mörk 30-27 eftir að staðan hafi verið 15-13, Álaborg í vil í hálfleik. Ómar Ingi Magnússon hefur farið á kostum á tímabilinu og hann hélt uppteknum hætti í kvöld. Hann skoraði átta mörk og gaf fimm stoðsendingar en Janus Daði Smárason bætti við tveimur mörkum. Arnar Birkir Hálfdánsson skoraði tvö mörk úr sjö skotum fyrir SönderjyskE og gaf eina stoðsendingu en SönderjyskE er í fimmta sæti deildarinnar.
Handbolti Mest lesið Dómarinn hlýtur mikið lof fyrir stundarbræði í garð Jake Paul og Joshua Sport Pílukastarinn biðst afsökunar á að hafa fallið á lyfjaprófinu og öllum lygunum Sport Tvenna frá Rogers tryggði Villa sigur gegn Manchester United Enski boltinn Haaland gaf barnabarni Hareide gjöf Enski boltinn Albert skoraði í fyrsta sigri Fiorentina Fótbolti Arnór Ingvi orðinn leikmaður KR Íslenski boltinn Tvær títanplötur settar í Jake Paul eftir kjálkabrotið Sport Ronaldo á nærbuxunum lætur Elon Musk efast um sjálfan sig Fótbolti „Ef dómarinn hefði sinnt sínu starfi almennilega hefði Romero ekki fengið spjald“ Enski boltinn Sjáðu mörkin úr enska: Sviptingar, sænskt þema og svakalegar tæklingar Enski boltinn Fleiri fréttir Rúnar sótti sinn fyrsta sigur sem þjálfari Wetzlar Haukur með sjö mörk og Magdeburg rétt marði botnliðið Rúmlega áttræður Moustafa endurkjörinn forseti IHF með yfirburðum Slæm fjárhagsstaða HSÍ kemur ekki niður á EM Donni fagnaði EM vali með skotsýningu Sigvaldi Björn fjarri góðu gamni í sjaldséðu tapi Kolstad Eva Björk með stórleik í fyrsta sigri Stjörnunnar „Hann er ein stærsta ástæðan fyrir því“ KA-menn fengu góða jólagjöf Flautumark hjá FH og ÍR með þeim í Höllina KA í undanúrslit á kostnað bikarmeistaranna Stærsti leikur ársins í Eyjum fer fram í kvöld „Er því miður kominn í jólafrí“ „Þetta var mjög skrítinn leikur“ Haukakonur í fjórða sætið KA/Þór - Valur 23-30 | Ótrúlegur viðsnúningur gestanna Ómar óstöðvandi og Magdeburg í undanúrslit Ómar Ingi fær meiri ábyrgð og tekur við kyndlinum af Aroni Ekkert stríð við Porto og einstakur Þorsteinn nítjándi maður Síðasta verkefni reyndist dýrt fyrir Sigvalda Teitur fer á EM sem hornamaður í stað Sigvalda Snorri kynnti EM-strákana okkar Hleyptu Þorsteini ekki heim og vilja ekki að hann fari á EM Kári og Logi vilja henda Ými út úr landsliðinu Sagður utan hóps fyrir Bjarka og Orra Geggjaðar Eyjakonur á toppinn Þorsteinn Leó að ná sér „langt á undan áætlun“ Birtu tölvupóst þar sem efast er um heilsu forseta IHF Valdi ekki eigin leikmann í landsliðið Halda Orra og Sporting engin bönd Sjá meira