Mourinho: Liverpool verður að vinna deildina Arnar Geir Halldórsson skrifar 27. júlí 2018 07:30 Jose Mourinho. vísir/getty
Jose Mourinho, stjóri Man Utd, telur erkifjendurna í Liverpool verða að vinna til verðlauna á komandi leiktíð í kjölfar þess að hafa farið mikinn á leikmannamarkaðnum að undanförnu. Liverpool mun tefla fram dýrasta markverði sögunnar, Alisson Becker, og dýrasta varnarmanni sögunnar, Virgil van Dijk og hafa að auki fengið sterka leikmenn til liðs við sig í þeim Naby Keita, Fabinho og Xherdan Shaqiri. „Þegar lið sem komst í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu eyðir svona miklu eins og þeir eru að gera, bæði í sumar og í janúar, þá verða þeir að vinna deildina,“ sagði Mourinho á blaðamannafundi eftir æfingaleik Man Utd og AC Milan áður en hann hélt áfram að ræða um Liverpool. „Ef þú átt svona mikinn pening er betra að eyða honum en að geyma hann í bankanum. Þú verður að nota peninginn rétt og satt best að segja tel ég að þeir hafi gert það. Allir sem þeir hafa keypt eru gæðaleikmenn. Það er gott fyrir þá,“ segir Mourinho. Hann skaut líka létt á kollega sinn hjá Liverpool, Jurgen Klopp. Þegar Man Utd keypti Paul Pogba á 80 milljónir punda fyrir tveimur árum lét Klopp í sér heyra og sagðist frekar myndu kveðja knattspyrnuna en að eyða slíkum fjárhæðum í leikmannakaup. Klopp viðurkenndi á dögunum að hann væri búinn að skipta um skoðun. „Það er líka gaman að sjá að menn geti skipt um skoðun og að fólk breytist. Þetta er fyndið en mér finnst þetta allt í lagi,“ segir Mourinho.
Enski boltinn Tengdar fréttir Segir Liverpool líklegast til að veita Man. City samkeppni Fyrrverandi fyrirliði Chelsea hefur mikla trú á lærisveinum Jürgen Klopp. 26. júlí 2018 06:00 Salah og Mane sáu um City á meðan Tottenham skoraði fjögur Öll mörk næturinnar frá æfingaleikjum vestanhafs má finna í fréttinni. 26. júlí 2018 07:30 Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Fótbolti Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Styrktaraðili HM sniðgengur mótið eftir að Rússum var hleypt inn Sport Börsungar léku sér að Aston Villa Fótbolti PSG setti nýtt met í kvöld Fótbolti Fleiri fréttir Áfram skorar Andri Lucas „Þið haldið kannski að ég sé brjálaður“ Sakar Mac Allister um að reyna að veiða sig í að fá rautt spjald West Ham búið að reka stjórann Brotnaði niður á æfingu á síðustu leiktíð en er nú næstur á eftir Haaland Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Annar sigur Everton á Newcastle á innan við viku Man Utd með nærri 25 prósent líkur á falli Aston Villa hættir við málsókn gegn Carragher Ólíklegt að leikmenn Man United séu með fallákvæði í samningum Orða varnarmann Barcelona við Manchester United Iraola mun segja Isak að láta sig falla í framtíðinni „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Eiður fann til með Liverpool Eiður með gæsahúð á Anfield Ekki unnið á Anfield í 14 ár Hildur skoraði í sigri Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Tottenham án vandræða upp í efri hlutann Raunamæddur Carrick neitaði að kenna Martínez um Brentford bjargaði United frá fallsæti Sjá meira
Segir Liverpool líklegast til að veita Man. City samkeppni Fyrrverandi fyrirliði Chelsea hefur mikla trú á lærisveinum Jürgen Klopp. 26. júlí 2018 06:00
Salah og Mane sáu um City á meðan Tottenham skoraði fjögur Öll mörk næturinnar frá æfingaleikjum vestanhafs má finna í fréttinni. 26. júlí 2018 07:30