Margrét nýr forstjóri Nova Kristín Ólafsdóttir skrifar 17. ágúst 2018 10:02 Margrét Tryggvadóttir, nýr forstjóri Nova.
Stjórn fjarskiptafyrirtækisins Nova hefur ráðið Margréti B. Tryggvadóttur í starf forstjóra félagsins. Þetta kemur fram í tilkynningu frá fyrirtækinu. Margrét var áður aðstoðarforstjóri Nova og hefur verið einn af lykilstjórnendum fyrirtækisins allt frá stofnun, að því er segir í tilkynningu. Margrét hefur starfað í tæp tuttugu ár sem stjórnandi í fjarskiptageiranum en áður en hún kom að stofnun Nova starfaði hún meðal annars fyrir Tal og Vodafone. Liv Bergþórsdóttir, fráfarandi forstjóri félagsins, og Jóakim Reynisson, fráfarandi framkvæmdastjóri tæknisviðs Nova, láta nú af störfum hjá félaginu en munu áfram gegna ráðgjafarhlutverki og vera nýjum forstjóra innan handar næstu mánuði. „Ég hlakka til að taka við stjórninni á stærsta skemmtistað í heimi. Við ætlum að halda áfram að stækka skemmtistaðinn, viðhalda gleðinni og bæta við lagalistann fyrir viðskiptavini okkar. Vöxturinn og breytingarnar sem við höfum upplifað síðustu ár hafa verið ótrúlegar og ég hlakka til, í þessu nýja hlutverki, að vinna enn fleiri sigra með starfsfólki Nova,“ er haft eftir Margréti í tilkynningu Nova. Samhliða þessum breytingum þá hefur tæknisviði Nova verið skipt upp í tvö svið; fjarskiptasvið og upplýsingatæknisvið. Benedikt Ragnarsson mun leiða fjarskiptasvið Nova og Gunnar A. Ólafsson mun stýra upplýsingatæknisviði. Báðir hafa þeir verið lykilstjórnendur hjá Nova undanfarin 10 ár.
Vistaskipti Mest lesið „Katrín Olga, þetta er eingöngu hálftími af þínu lífi“ Atvinnulíf Kínverski risinn sem herjar á evrópska neytendur Viðskipti innlent Að gera ekki algeng mistök sem stjórnandi í fyrsta sinn Atvinnulíf „Hann eyðileggur alltaf alla stemningu um leið og hann kemur“ Atvinnulíf Reynslubolti í hótelrekstri færir sig um set Viðskipti innlent Vilja rannsaka meint samráð með OPEC Viðskipti erlent „Ég nenni ekki að standa í einhverju veseni“ Atvinnulíf Nýjum alþjóðaflugvelli á Grænlandi seinkar enn Viðskipti erlent Hvetja fólk til að taka verðmerkingum í Hagkaup með fyrirvara Viðskipti innlent Kann best við sig í háspennunni Samstarf Fleiri fréttir Bein útsending: „Hvað verður í matinn?“ Skrifuðu undir kaup Landsbankans á TM Reynslubolti í hótelrekstri færir sig um set Icelandair tekur skarpa dýfu niður fyrir útboðsgengi Verðbólgan tekur smá kipp upp á við Wise og Þekking orðin eitt Kínverski risinn sem herjar á evrópska neytendur Sögðu upp 82 starfsmönnum Hvetja fólk til að taka verðmerkingum í Hagkaup með fyrirvara Fjölda fólks sagt upp hjá Icelandair Kaldvík skráð á markað Ofgreiddar lífeyrisgreiðslur nærri tvöfölduðust á milli ára Dæla skyrinu af ísvélum á Skálinni Bein útsending: Framtíð EES til umræðu á þrjátíu ára afmæli Sker úr um hvort veitingamaður hafi mátt borga fyrir kókið Allir halda stjörnu og OTO fær viðurkenningu Ætla að bjóða vaxtalaus lán í aðdraganda mánaðamóta Muni gera meiri kröfur til áfengiskaupenda en flestir aðrir Vilja koma fleirum en Kynnisferðum inn í BSÍ Algjör óvissa með Dragon Dim Sum Landsbankinn telur skilmála sína nógu skýra Orðalag þurfi að vera nægilega skýrt fyrir sæmilega upplýstan neytanda Ráðinn markaðsstjóri Bílabúðar Benna Fetar í fótspor forverans og vildi einn lækka vexti Bein útsending: Efnahagsráðstefna í Reykjavík Kaupsamningum fjölgar en mikið ójafnvægi á leigumarkaði Hætta við hlutafjárútboð og skráningu Íslandshótela Hátt verð fæli ferðamanninn frá Íslandi Deilan um boltann fer alla leið í Hæstarétt AGS leggur til skattahækkanir Sjá meira