Guðlaugur Þór kveðst anda léttar eftir hollensku kosningarnar Atli Ísleifsson skrifar 16. mars 2017 12:19 Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra Vísir/Stefán
Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra segist anda léttar eftir að niðurstaða hollensku þingkosninganna í gær varð ljós. Utanríkisráðherra segir í samtali við Vísi að Hollendingar séu nánir bandamenn okkar Íslendinga og það fjölþjóðlega samfélag sem hafi byggst upp í Hollandi sé að mörgu leyti fyrirmynd annarra ríkja. „Ég, eins og aðrir sem fylgst hafa með stjórnmálaþróun í Evrópu, öndum talsvert léttar við að sú öfgafulla umræða og stjórnmálastefna sem keyrð hefur verið hart áfram af stjórnmálamanninum Geert Wilders náði ekki þeirri fótfestu sem óttast var,“ segir Guðlaugur Þór. Hann segir Hollendinga vera öfluga þjóð með mikla sögu og ríka hefð fyrir málamiðlunum í stjórnmálum. „Eitt er kristalskýrt og það er að útlendingahatur og harðlínustefna í innflytjendamálum er ekki ríkjandi skoðun í Hollandi. Úrslit kosninganna benda til að hefðbundin mál, ríkisfjármál, heilbrigðismál og svo framvegis réðu för og nokkuð ljóst að í Hollandi eins og víða annars staðar í Evrópu eru kjósendur að hafna helstu valkostunum vinstra megin við miðjuna,“ segir ráðherra.Flokkur Rutte stærstur Þegar búið er að telja 97 prósent atkvæða eru Rutte og VVD-flokkur hans með 33 þingsæti af 150. Flokkur Rutte tapar raunar átta þingsætum frá síðustu kosningum, en flokkurinn verður áfram sá stærsti á þingi. Flokkur popúlistans Geert Wilders verður annar stærsti – hlýtur tuttugu sæti og bætir við sig fimm. Í kosningabaráttunni var lengst af tvísýnt hvor flokkurinn yrði stærstur á þingi að kosningum loknum. Búist er við að stjórnarmyndunarviðræður gætu tekið nokkurn tíma, en að mið- og hægriflokkar munu nú leitast eftir að mynda stjórn.
Tengdar fréttir Leiðtogar Evrópuríkja óska Rutte til hamingju VVD-flokkur Mark Rutte vann sigur í hollensku þingkosningunum í gær. 16. mars 2017 10:21 Rutte: Holland hafnaði popúlisma Forsætisráðherra Hollands, Mark Rutte, fagnaði sigri í nótt þegar ljóst var að flokkur hans, Frelsis- og lýðræðisflokkurinn, fékk flest atkvæði í þingkosningunum í g 16. mars 2017 07:48 Mest lesið Vitni segir bílinn hafa ekið hratt fram úr sér skömmu fyrir slysið Innlent Náði ekki að loka búðinni áður en henni var sagt að koma sér út Innlent Eldur logar í þaki Kringlunnar Innlent Alvarlegt rútuslys í Öxnadal Innlent Harma banaslysið og hafa uppfært verkferla Innlent Myndir: Allt á floti í Kringlunni Innlent Neita að borga tjón eftir að hafa mokað snjó yfir bíl Innlent „Sumar búðir hafa sloppið vel, aðrar ekki“ Innlent Isavia stefnir að því að hefja gjaldtöku í vikunni Innlent Leiðinlegt fyrir útskriftarnema sem er hent út áður en þeir taka sopa Innlent Fleiri fréttir Hver er þessi 28 ára maður sem gæti orðið forsætisráðherra Frakka? Netanyahu vill ekki gera hlé á hernaði Hyggjast gera dagleg hlé á árásum til að auka við neyðaraðstoð Katrín kemur fram í fyrsta sinn frá krabbameinsgreiningu Festust á hvolfi í hálftíma Krefst landsvæðis og að Úkraína dragi NATO-umsóknina til baka Vara við TikTok-æði eftir handtöku tveggja unglinga Samþykktu fimmtíu milljarða dala aðstoð til Úkraínu Lést eftir að hafa fengið rafstraum í heitum potti Óeirðaástand í Buenos Aires vegna aðgerðarpakka Milei Lokuðu ferðamannastöðum og skólum vegna mikils hita Gamall handritsbútur reyndist úr guðspjalli um æsku Krists Aðeins fjórðungur Breta vill vera utan ESB Reyna að mynda bandalög fyrir skyndikosningar í Frakklandi Óvíst með afdrif vopnahléstillögunnar Frederiksen enn ekki með sjálfri sér eftir árásina Íhuga að virða tímamótadóm að vettugi Biden virðir sakadóminn yfir syni sínum Óhollar vörur drepa fjórðung Evrópubúa Stilla upp harðlínumönnum til að fylla skarð Raisi Flugfélagið býður hinum slösuðu minnst 1,4 milljónir í bætur Bananarisi ábyrgur fyrir morðum kólumbískrar dauðasveitar Umdeildur dómari vill trúræknari Bandaríki Varaforseti Malaví á meðal tíu látinna Hamas samþykkir vopnahléstillöguna Merki um stríðsglæpi beggja fylkinga þegar gíslar voru frelsaðir Skutu viðvörunarskotum að norðurkóreskum hermönnum Hægri öfl gætu eignast sinn fyrsta forsætisráðherra Tólf ára drengir sekir um morð á nítján ára gömlum manni Öryggisráðið styður friðartillögu Biden Sjá meira
Leiðtogar Evrópuríkja óska Rutte til hamingju VVD-flokkur Mark Rutte vann sigur í hollensku þingkosningunum í gær. 16. mars 2017 10:21
Rutte: Holland hafnaði popúlisma Forsætisráðherra Hollands, Mark Rutte, fagnaði sigri í nótt þegar ljóst var að flokkur hans, Frelsis- og lýðræðisflokkurinn, fékk flest atkvæði í þingkosningunum í g 16. mars 2017 07:48