KEA vísar „órökstuddum og óskiljanlegum ávirðingum“ um blekkingu á bug Hulda Hólmkelsdóttir skrifar 4. maí 2017 13:29 Fjárfestingafélagið KEA segir það ekki rétt að Akureyrarbær hafi verið blekktur þegar KEA keyptu 15,2 prósenta hlut í Tækifæri af bænum fyrir samtals 116 milljónir.
Fjárfestingafélagið KEA segir það ekki rétt að Akureyrarbær hafi verið blekktur þegar KEA keypti 15,2 prósenta hlut í Tækifæri af bænum fyrir samtals 116 milljónir.Í Fréttablaðinu í dag var greint frá því að nokkrum mánuðum eftir söluna var upplýst um að Tækifæri hefði hagnast um 555 milljónir á árinu 2016. KEA keypti upp hluti sveitarfélaga í upphafi árs 2016 rétt undir nafnverði í lokuðu ferli. Tólf sveitarfélög hafi svo fylgt Akureyrarbæ í blindni og seldu á sama verði og Akureyrabær. „Í frétt Fréttablaðsins í dag eru birtar ávirðingar um að KEA hafði blekkt Akureyrarkaupstað í viðskiptum í janúar 2016 með um 15% eignarhlut í nýsköpunarsjóðnum Tækifæri hf. á grundvelli þess að KEA hafi haft aðrar og betri upplýsingar um hið keypta. Slíkum órökstuddum og óskiljanlegum ávirðingum er með öllu vísað á bug,“ segir í tilkynningu frá KEA. „Á þessum tíma sátu bæði starfmaður KEA og Akureyrarkaupstaðar í stjórn Tækifæris. Aðilar viðskiptanna sátu því algjörlega við sama borð hvað aðgengi að upplýsingum varðar.“ Þar segir einnig að allir aðrir hluthafar í Tækifæri hafi fengið upplýsingar um viðskiptin beint í framhaldi þeirra þar sem forkauparéttarákvæði séu í samþykktum félagsins. „Því var eðli máls samkvæmt engin leynd um þessi viðskipti gagnvart öðrum hluthöfum.“ Ekki tókst að ná tali af Halldóri Jóhannssyni, forstjóra KEA og stjórnarformanni Tækifæris, við vinnslu fréttar Fréttablaðsins.
Tengdar fréttir Telur einsýnt að bæjarráðsmenn hafi verið blekktir Rúmlega hálfs milljarða króna hagnaður Tækifæris á síðasta ári sýnir að bæjarráð hafi verið blekkt, segir fyrrum bæjarfulltrúi. Á þessu einu ári hefði hagnaður bæjarins slagað upp í 75 prósent af söluandvirðinu. 4. maí 2017 05:00 Mest lesið Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Innlent Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Innlent Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Innlent Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Innlent Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Innlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Vance biðlar til ungra reiðra manna Erlent Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Innlent Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Innlent Fleiri fréttir Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Sjá meira
Telur einsýnt að bæjarráðsmenn hafi verið blekktir Rúmlega hálfs milljarða króna hagnaður Tækifæris á síðasta ári sýnir að bæjarráð hafi verið blekkt, segir fyrrum bæjarfulltrúi. Á þessu einu ári hefði hagnaður bæjarins slagað upp í 75 prósent af söluandvirðinu. 4. maí 2017 05:00