Telur einsýnt að bæjarráðsmenn hafi verið blekktir Sveinn Arnarsson skrifar 4. maí 2017 05:00 Akureyrarbær mat fyrirtækið á um 880 milljónir króna. Hagnaður fyrirtækisins var 555 milljónir í fyrra. vísir/pjetur
Fjárfestingafélagið KEA keypti í fyrra 15,2 prósenta hlut í Tækifæri af Akureyrarbæ fyrir samtals 116 milljónir. Nokkrum mánuðum síðar var upplýst um að Tækifæri hefði hagnast um 555 milljónir á árinu 2016. KEA keypti upp hluti sveitarfélaga í upphafi árs 2016 rétt undir nafnverði í lokuðu ferli. Tólf sveitarfélög fylgdu Akureyrarbæ í blindni og seldu á sama verði og Akureyrarbær.Sigurður Guðmundsson„Það er að koma betur og betur í ljós að bæjarfulltrúar voru blekktir, þeir ekki með réttar upplýsingar og KEA eignast þarna félag sem býr til góðan hagnað. Þeir höfðu menn í stjórn og vissu nákvæmlega framtíðaráformin á meðan bæjarfulltrúar vissu lítið um málið og reiddu sig á upplýsingar fjármálastjóra bæjarins,“ segir Sigurður Guðmundsson, kaupmaður á Akureyri og fyrrverandi bæjarfulltrúi, en hann gagnrýndi harðlega sölu bæjarins á hlutnum í Tækifæri á síðasta ári. Eign Akureyrarbæjar var færð í bækur bæjarins upp á um 116 milljónir króna sem segir okkur að Akureyrarbær taldi fyrirtækið metið á um 900 milljónir. Bærinn seldi hlut sinn í lokuðu ferli og samþykkti beiðni KEA um að færa málið í trúnaðarbók félagsins á sínum tíma. Bærinn var harðlega gagnrýndur fyrir að hafa farið með eignir bæjarbúa á þennan hátt og ekki tryggt hæsta mögulega verð fyrir hlut bæjarbúa. Hlutdeild Akureyrarbæjar í hagnaði félagsins fyrir þetta eina ár, ef bærinn hefði ekki selt hlut sinn, hefði því verið um 86 milljónir, eða sem nemur um 75 prósent af söluandvirðinu. „Við skoðuðum það á sínum tíma hvort hægt væri að láta kaupin ganga til baka," segir Guðmundur Baldvin Guðmundsson, formaður bæjarráðs. „Við töldum á þeim tíma að þetta væri ásættanlegt verð. Fjármagnið sem fékkst við söluna hefur meðal annars verið nýtt til að stofna frumkvöðlasetur en að öðru leyti vísa ég í bókun bæjarráðs frá 13. október þar sem bæjarráð fer yfir málið.“ Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri segir það ekki eiga að vera hlutverk sveitarfélaga að sýsla með fyrirtæki eins og Tækifæri. „Akureyrarbær fékk greitt fyrir hlut sinn það sama og það lagði út í upphafi. Maður veltir því fyrir sér hvort bærinn eigi að eiga hlut í fyrirtækjum sem þessum.“ Ekki náðist í Halldór Jóhannsson, forstjóra KEA og stjórnarformann Tækifæris, við vinnslu fréttarinnar. Tekið skal fram að stjórn Tækifæris leggur ekki til að greiddur verði arður til hluthafa vegna afkomu síðasta árs.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Erlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ Innlent Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Innlent Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Innlent Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Innlent „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Innlent „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Innlent Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Innlent Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Innlent Fleiri fréttir „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Skipulagt niðurbrot á réttindum launafólks hafi náð til Íslands „Konur upplifa ekki öryggi í íslensku samfélagi“ Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Mátti ekki arfleiða sambýliskonuna að séreigninni Dómsmálaráðherra boðar herta löggjöf í vændismálum Vændiskaupendur verði nafngreindir og þeim stungið í steininn Svör Kristrúnar minni meira á Keir Starmer en Mette Fredriksen Flugvallarstæði Hvassahrauns á mesta áhættusvæði hraunflæðis Svæðisskrifstofur Guðmundar Inga líklega slegnar út af borðinu Helmingur gæti ekki mætt 100 þúsund króna útgjöldum Bein útsending: Svarar fyrir skipulagsbreytingar á framhaldsskólum Bein útsending: Ræða markmiðadrifði hagkerfi í þaula Rifjaði upp erfitt augnablik frá 1994 til að skjóta á mótherja Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Baldur til Eyja „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ Sjá meira