Lamborghini Urus verður 650 hestöfl Finnur Thorlacius skrifar 16. maí 2017 11:39 Lamborghini Urus jeppinn.
Fyrsti jeppi ítalska sportbílaframleiðandans Lamborghini, Urus, mun koma á markað á öðrum ársfjórðungi næsta árs, þ.e. eftir um ár. Hann verður með 4,0 lítra V8 vél með tveimur forþjöppum og forstjóri Lamborghini, Stefano Domenicali, hefur ljóstrað því upp að hann skili 650 grjóthörðum hestöflum til allra hjólanna. Meiningin er svo að koma fram með tengiltvinnútfærslu bílsins á öðrum ársfjórðungi ársins 2019. Lamborghini stefnir að því að framleiða 1.000 eintök af Urus á næsta ári en 3.500 eintök árið 2019. Það myndi þýða um helmings aukningu á framleiðslu Lamborghini fyrirtækisins. Lamborghini Urus mun kosta skildinginn, eða um 200.000 dollara, þ.e. rétt yfir 20 milljónir króna. Lamborghini hóf smíði fyrstu Urus bílanna í apríl nýliðnum og er nú að prófa hina endanlegu útfærslu bílsins. Hjá Lamborghini er ekki meiningin með smíði Urus að framleiða sneggsta jeppann sem fer hringinn á Nürburgring brautinni, heldur að smíða þægilegan fjölskyldujeppa sem þó er með krafta í kögglum. Urus verður ekki öflugasti jeppi í heimi þegar hann kemur á markað og nú þegar býðst t.d. Jeep Grand Cherokee Trackhawk með 707 hestafla Hellcat vél. Hann er aðeins 3,5 sekúndur í hundraðið og fer kvartmíluna á aðeins 11,6 sekúndum. Porsche mun að auki setja brátt á markað Cayenne jeppa sinn með 4,0 lítra V8 vél auk rafmótora sem samtals skilar 671 hestafli. Með þeirri drifrás má reyndar núna fá stóra Porsche Panamera fólksbílinn.
Mest lesið „Vona að þú sofir vel“ Innlent „Ekki bara rekinn heldur á staðnum og fyrirvaralaust“ Innlent Búið að innsigla Kastrup: „Góður að taka á móti fólki en ömurlegur í tölvupóstum“ Innlent „Þetta er vítahringur sem endurtekur sig í sífellu!“ Innlent Kosningar í Ástralíu: Fylgi Íhaldsflokksins dvínar vegna framgöngu Trump Erlent Fyrirgefur fjölskyldunni og leitar sátta Erlent Tifandi tímasprengjan sem grunuð er um frelsissviptingu Innlent Sér fram á bjarta framtíð fyrir börnin þökk sé styrknum Innlent Í leyfi frá þingstörfum og flytur til New York Innlent Birgir Guðjónsson er látinn Innlent