Diaz berst ekki við Conor fyrir neina smáaura Henry Birgir Gunnarsson skrifar 1. september 2017 23:15 Conor og Diaz eftir síðasta bardaga. Staðan á milli þeirra er 1-1 og því verður að koma þriðja bardaganum á. vísir/getty
Margir UFC-aðdáendur vilja ólmir sjá Conor McGregor og Nate Diaz berjast í þriðja sinn en það verður dýrt fyrir UFC að koma þeim bardaga á. Conor er auðvitað orðinn langlaunahæsti bardagakappinn hjá UFC og skilar það miklum tekjum til sambandsins að hann fær alltaf vel borgað. Diaz ætlar ekki að gefa sig fyrir neina smáaura og þjálfarinn hans segir að Diaz berjist ekki fyrir minna en 20 eða 30 milljónir dollara. Síðustu tveir bardagar Diaz í UFC voru bardagarnir gegn Conor. Fyrir þá fékk hann 2,6 milljónir dollara samanlagt. Hann er því að biðja um ansi væna launahækkun. Peningarnir í kringum Conor eru það miklir að Diaz veit vel að hann getur fengið meira. „Að minnsta kosti 20 til 30 milljónir dollara. Það þýðir ekkert að vera með stæla. UFC er að græða mikla peninga og stingur þeim bara í vasann hjá sér. McGregor fær mikið og það er ekki sanngjarnt að bara hann græði á bardaga við Diaz,“ sagði Richard Perez. „Þriðji bardagi Nate og McGregor myndi fá mikið áhorf og það ætti því ekki að vera mikið mál að láta Nate fá 30 milljónir dollara.“ Fyrri bardagar kappanna fóru fram í veltivigt en Conor er í þyngdarflokknum þar fyrir neðan. Írinn vill líka að þriðji bardaginn fari fram í hans þyngdarflokki.
MMA Mest lesið Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Þrír líklegustu dottnir úr leik Sport „Betra liðið tapaði” Fótbolti Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti „Vissi bara ekki hvað var að gerast hérna“ Íslenski boltinn Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Körfubolti „Ég er rígmontinn af þeim” Fótbolti „Arfaslakir og undir í öllum þáttum leiksins“ Íslenski boltinn Þykja Alpine liðið vera of dýrt Formúla 1 „Allir tala um hvað ég er gamall“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Lætur hnefana tala HM minningin: Tár vandræðagemlingsins bræddu hjörtu heillar þjóðar Þykja Alpine liðið vera of dýrt Dagskráin í dag: Landar Arsenal þeim stóra? Þrír líklegustu dottnir úr leik „Betra liðið tapaði” „Ég er rígmontinn af þeim” Gordon mættur til Börsunga „Vissi bara ekki hvað var að gerast hérna“ „Arfaslakir og undir í öllum þáttum leiksins“ „Allir tala um hvað ég er gamall“ Fara í efstu deild þrátt fyrir jafntefli í umspili Böðvar: Drullu mikilvægur sigur Uppgjör: FH - ÍA 0-1 | ÍA sótti sigur í Kaplakrika Fram - Breiðablik 4-3 | Fara fljúgandi í landsleikjahléið Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Hörkuleikur í Ungverjalandi Kristianstad er sænskur meistari Bjóða tónleikamiða í skiptum við Yamal Valur - Þróttur 0-1|Sigra manni færri á útivelli Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Alcaraz fann til með Sinner Doncic flytur félag til Rómar „Amma mín heitin gæti látið Vitinha spila vel“ Óskar Hrafn á hælana? Mourinho kynntur til leiks eftir kosningar Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Brann kveður Jón Dag Sjá meira