Erlingur tekur við hollenska landsliðinu í handbolta Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 4. október 2017 21:00 Erlingur Birgir Richardsson verður næsti þjálfari hollenska karlalandsliðsins í handbolta. Vísir/Getty
Eyjamaðurinn Erlingur Birgir Richardsson hefur gert þriggja ára samning við hollenska handboltasambandið og verður næsti þjálfari karlalandsliðs Hollendinga. Erlingur er 45 ára gamall og er nýtekinn við sem skólastjóri Grunnskóla Vestmannaeyja en hann var þar að leysa Sigurlás Þorleifsson af skólaárið 2017 til 2018. Erlingur er því enn einn íslenski handboltaþjálfarinn sem fær tækifæri til að þjálfa erlent landslið en eins og er þá eru landslið Japan, Barein, Austurríkis, Noregs (konur) og Svíþjóðar með íslenska landsliðsþjálfara. Erlingur hefur áður þjálfað félagslið í þremur löndum (Íslandi, Austurríki og Þýskalandi) en hefur ekki þjálfað síðan að hann hætti sem þjálfari Füchse Berlin í desember í fyrra. Þetta verður fyrsta aðalþjálfarastarf hans með landsliði en hann hefur áður verið aðstoðarmaður hjá íslenska landsliðinu. Þegar Erlingur hætti með Berlínarrefina var hann á sínu öðru ári með Füchse Berlin eftir að hafa tekið við af Degi Sigurðssyni. Erlingur þjálfaði SG Handball West Wien í tvö ár þar á undan og þá gerði hann karlalið HK að Íslandsmeisturum 2012. Hollenska karlalandsliðið í handbolta hefur aðeins einu sinni komist á stórmót og það var á HM 1961 eða fyrir 56 árum síðan. Liðið endaði í 3. sæti í sínum riðli í síðustu undankeppni Evrópumótsins á eftir Danmörku og Ungverjalandi sem komust inn á EM í Króatíu 2018. Kvennalandslið Hollendinga hefur aftur á móti verið að ná frábærum árangri á stórmótunum síðustu ár og varð í 2. sæti á síðasta EM 2016.
Íslenski handboltinn Handbolti Mest lesið „Ég var rosalega veik þegar sá leikur átti sér stað“ Fótbolti Eriksen hneig aftur niður og leikurinn blásinn af Fótbolti Pérez endurkjörinn sem forseti Real Madrid Fótbolti Ollie Kane kynntur til leiks Fótbolti Áfall fyrir Kanada skömmu fyrir HM Fótbolti „Hann breytti kúlturnum“ Handbolti Búist við því að Messi spili gegn Íslandi Fótbolti Jason Daði skoðar sig um á Skaganum Íslenski boltinn Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Handbolti Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars Handbolti Fleiri fréttir Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Hörkuleikur í Ungverjalandi Kristianstad er sænskur meistari Velti sinni stöðu fyrir sér þegar eitt stykki Aron vildi verða þjálfari Fékk þjálfarabakteríuna á nokkrum vikum Sjá meira