73 kynferðisbrot framin inni á skemmtistöðum frá árinu 2005 Benedikt Bóas Hinriksson skrifar 17. febrúar 2017 07:00 Miðbærinn á fullum krafti um helgarnótt. Myndin er úr safni.
Alls voru á síðasta ári tilkynnt um 14 kynferðisbrot sem áttu sér stað í miðbæ Reykjavíkur, átta voru framin utandyra, í nálægð við skemmtistaði, í almenningsgörðum og á álíka stöðum. Alls komu sex einstaklingar á Neyðarmóttöku fyrir þolendur kynferðisofbeldis eftir að hafa orðið fyrir kynferðisbroti inni á eða við skemmtistaði í miðbæ borgarinnar. Frá 2005 hafa komið á Neyðarmóttökuna 73 þolendur kynferðisbrota sem voru framin inni á skemmtistöðum miðbæjarins. Árið 2009 sker sig úr en þá komu 14 þolendur á Neyðarmóttökuna eftir að hafa orðið fyrir kynferðisbroti inni á skemmtistað. Aldrei áður hafa jafn margir leitað á Neyðarmóttökuna og á síðasta ári eða 169 einstaklingar. Á þeim 23 árum sem hún hefur verið starfrækt hafa mest leitað þangað 145 einstaklingar. Alls leituðu 37 börn á Neyðarmóttökuna, það eru yngri en 18 ára, en langflestir þolendur, eða 70, voru á framhaldsskóla- og háskólastigi, þ.e. 18-25 ára. Að meðaltali hafa 120-140 einstaklingar leitað til Neyðarmóttökunar á ári, 97 prósent þeirra eru konur. Hrönn Stefánsdóttir, verkefnastjóri Neyðarmóttöku sem að tók tölfræðina saman fyrir ofbeldisvarnarnefnd Reykjavíkurborgar, segir að flest kynferðisbrot séu framin í heimahúsum þar sem einhver kynni hafa orðið á milli geranda og þolanda. „Við erum vonandi ekki að sjá aukinn fjölda í kynferðisbrotum heldur er þjóðfélagið opnara, það er opnari umræða um kynferðisbrot og fólk veit hvert það á að leita ef það verður fyrir kynferðisofbeldi. Það skiptir máli að við fáum brotaþola til okkar og komum þeim í öryggan farveg m.t.t. líkamlegrar og andlegrar heilsu. Við erum gott teymi sem að vinnum að þessum málaflokki og setjum hagsmuni brotaþola alltaf í forgrunn þar sem að brotaþoli hefur val um hvaða þjónustu hún eða hann velur" segir hún.Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Forsetavaktin: Sjöundi forseti lýðveldisins verður kjörinn Innlent Mætti á kjörstað en fékk þau svör að hún væri búin að kjósa Innlent Jón Gnarr mjög bjartsýnn: „Fyrsti krúnurakaði rauðhærði forsetinn“ Innlent „Galið! Kosningar eru greinilega ekki fyrir öll!“ Innlent Tívolíbomba hefði getað skapað stórhættu Innlent Bein útsending: Kosningasjónvarp Stöðvar 2 Innlent „Unga fólkið er klárlega að velja okkar framboð“ Innlent „Við höfum ekki séð þetta á Íslandi áður“ Innlent Beið í klukkustund eftir að fá að kjósa Innlent Ólík sýn á hvort Ísland eigi að styðja vörn Úkraínumanna Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Kosningasjónvarp Stöðvar 2 Alls konar dýnamík geti komið inn við myndun tveggja turna Beið í klukkustund eftir að fá að kjósa „Galið! Kosningar eru greinilega ekki fyrir öll!“ Mætti á kjörstað en fékk þau svör að hún væri búin að kjósa Ráðinn slökkviliðsstjóri á Suðurnesjum Skipuð í embætti fiskistofustjóra Kjörsókn utankjörfundar minni en 2020 Sársvekktur að hafa ekki getað kosið í Mývatnssveit Allt um æsispennandi forsetakosningar og leik ársins í fótboltanum Skili embættinu þannig að nýr forseti og þjóðin geti vel við unað Kosningarnar þær mest spennandi síðan 1980 Veðurspá slæm fyrir vikuna og bændur hvattir til að huga að búfénaði Slasaðist á buggy-bíl í Básum í Goðalandi Bláa lónið opnar aftur á morgun Sjómannadagsfjör á Skagaströnd Margir góðir frambjóðendur í boði Jón Gnarr mjög bjartsýnn: „Fyrsti krúnurakaði rauðhærði forsetinn“ „Held ég fari bara að sofa upp úr miðnætti“ Rolluhótel sárabót fyrir að missa gistiheimilið „Væta í minni sveit boðaði heldur betur grósku“ „Unga fólkið er klárlega að velja okkar framboð“ Kjörsókn víða ívið betri en í síðustu kosningum Fékk „gríðarlega góð“ viðbrögð eftir kappræðurnar Fólk kasti atkvæði sínu á stríðsbálið „Ég held að þetta verði mjög spennandi“ Forsetavaktin: Sjöundi forseti lýðveldisins verður kjörinn Tívolíbomba hefði getað skapað stórhættu Ólík sýn á hvort Ísland eigi að styðja vörn Úkraínumanna „Við útrýmum ekki ofbeldi með hatri“ Sjá meira