Róbert: Ekki ákveðið að ég fari á EM Henry Birgir Gunnarsson skrifar 6. desember 2017 14:45 Róbert í landsleik gegn Makedóníu. vísir/getty
Það vakti verulega athygli í gær er Geir Sveinsson, landsliðsþjálfari í handbolta, ákvað að velja línumanninn Róbert Gunnarsson í 28 manna hópinn sinn fyrir EM í janúar. Það er ár síðan Róbert ákvað að gefa ekki kost á sér í landsliðið fyrir HM og hann tilkynnti á sama tíma að landsliðsskórnir væru komnir í hilluna. Þó svo Róbert sé í 28 manna hópi Geirs er langur vegur frá því að hann sé á leið á EM. Það þýðir einfaldlega að hann sé einn þeirra leikmanna sem Geir getur valið á mótið. „Geir heyrði í mér og spurði hvort ég væri til í að vera á 28 manna listanum. Ég sagði við Geir er ég hætti fyrir ári síðan að hann mætti alveg athuga með mig í neyðartilvikum. Núna er staðan sú að hann fékk leyfi til þess að setja mig á þennan lista og ekkert meira er ákveðið,“ segir Róbert en það er ekki sjálfgefið að hann geti gefið kost á sér á EM ef Geir vildi yfir höfuð velja hann í lokahópinn. „Staðan verður bara tekin er líða fer á mánuðinn. Ég gaf Geir leyfi til þess að setja mig á 28 manna listann og við tökum svo stöðuna síðar. Það kitlar handboltamanninn Róbert að fara á eitt mót í viðbót en það þarf þá að geta gengið upp með fjölskyldulífinu. Það er allt í skoðun og er alls ekki auðvelt.“
EM 2018 í handbolta Tengdar fréttir Róbert óvænt í 28 manna hópi Geirs Geir Sveinsson landsliðsþjálfari hefur valið þá 28 leikmenn sem koma til greina í hópinn á EM í Króatíu í janúar. 5. desember 2017 14:58 Mest lesið Biles flutt á spítala og er þakklát að vera á lífi Sport „Hann breytti kúlturnum“ Handbolti Ollie Kane kynntur til leiks Fótbolti Býst við skömmum frá KSÍ Íslenski boltinn HM-minning: Átti draumamark Maradona líka að vera dæmt af? Fótbolti Rúmlega helmingur hlaupara þurfti að hætta Sport Landsliðið sendi kveðju á Ingvar Íslenski boltinn „Ég verð að spila“ Enski boltinn Jason Daði skoðar sig um á Skaganum Íslenski boltinn Slagsmál og tvö rauð spjöld hjá Portúgölum Fótbolti Fleiri fréttir „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Hörkuleikur í Ungverjalandi Kristianstad er sænskur meistari Velti sinni stöðu fyrir sér þegar eitt stykki Aron vildi verða þjálfari Fékk þjálfarabakteríuna á nokkrum vikum Sigursteinn barðist við tárin Aron verður aðalþjálfari FH en Sigursteinn aðstoðar Hákon Daði til Aftureldingar Hættu leik þegar flugeldum var skotið inn á völlinn Sjá meira
Róbert óvænt í 28 manna hópi Geirs Geir Sveinsson landsliðsþjálfari hefur valið þá 28 leikmenn sem koma til greina í hópinn á EM í Króatíu í janúar. 5. desember 2017 14:58