Katrín endurskipuð sem fulltrúi í peningastefnunefnd atli ísleifsson skrifar 28. febrúar 2017 17:07 Katrín Ólafsdóttir. Vísir/Anton
Bjarni Benediktsson forsætisráðherra hefur endurskipað Katrínu Ólafsdóttur, lektor við Háskólann í Reykjavík, fulltrúa í peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands. Í tilkynningu frá ráðuneytinu kemur fram að Katrín sé lektor við viðskiptadeild Háskólans í Reykjavík og hafi verið fulltrúi í peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands frá 3. mars 2012. „Hún starfaði áður sem hagfræðingur hjá greiningardeild Landsbanka Íslands 2002-2003, forstöðumaður þjóðhagsspár hjá Þjóðhagsstofnun 1999-2002 og sem sérfræðingur á efnahagsskrifstofu fjármálaráðuneytisins 1991-1998. Katrín lauk doktorsprófi í vinnumarkaðshagfræði frá Cornell háskóla í New York árið 2009. Áður hafði hún lokið meistaranámi í hagfræði við sama skóla og AB gráðu í hagfræði með stærðfræði sem aukagrein við Occidental College í Los Angeles.Um peningastefnunefnd Ákvarðanir um beitingu stjórntækja Seðlabanka Íslands í peningamálum eru teknar af peningastefnunefnd. Stjórntæki bankans teljast í þessu sambandi vera vaxtaákvarðanir hans, viðskipti við lánastofnanir önnur en tilgreind eru í 2. mgr. 7. gr., ákvörðun bindiskyldu skv. 11. gr. og viðskipti á gjaldeyrismarkaði skv. 18. gr. sem hafa það að markmiði að hafa áhrif á gengi krónunnar. Ákvarðanir peningastefnunefndar skulu grundvallast á markmiðum Seðlabanka Íslands og vönduðu mati á ástandi og horfum í efnahags- og peningamálum og fjármálastöðugleika. Í peningastefnunefnd sitja seðlabankastjóri, sem er formaður, aðstoðarseðlabankastjóri, einn af yfirmönnum bankans á sviði mótunar eða stefnu í peningamálum og tveir sérfræðingar á sviði efnahags- og peningamála sem forsætisráðherra skipar,“ segir í tilkynningunni.
Mest lesið Vonast til að koma dánarbúinu í góðar hendur Neytendur Skelltu líka í lás á Exit og í Nýju vínbúðinni Viðskipti innlent Forstjóri, snúsari, mótorhjólatöffari, veiðimaður og framúrskarandi á ryksugunni Atvinnulíf Fjármálastjóri Play segir upp Viðskipti innlent Endurgjöf: Það sem þú átt ekki að gera Atvinnulíf Eitruð vinnustaðamenning algeng og margfaldar líkur á kulnun Atvinnulíf Reksturinn þungur í kjölfar „yfirgangs og afskipta lögreglu“ Viðskipti innlent Sækjast eftir fangelsisdómi yfir rafmyntakóngi Viðskipti erlent Mikill samdráttur á hagnaði Tesla Viðskipti erlent Nú er hægt að elta góða veðrið um landið með kortavef Já.is Samstarf Fleiri fréttir Reksturinn þungur í kjölfar „yfirgangs og afskipta lögreglu“ Fjármálastjóri Play segir upp Tryggðu sér 300 milljóna króna fjármögnun Skelltu líka í lás á Exit og í Nýju vínbúðinni Innsigla B5 að kröfu Skattsins Töpuðu þremur milljörðum á fyrsta ársfjórðungi Farsímatekjur undir væntingum Hæstiréttur sker úr um hvort taka hafi mátt bjór úr hillum Samþykkja helming umsókna um sölu eigna fyrir lok vikunnar Selma nýr formaður Kvenna í orkumálum Verðbólgan minnkar en vextirnir hækka Minnsta verðbólga í rúm tvö ár Tekjuhæsti fyrsti ársfjórðungur í sögu Icelandair Hefja viðræður um kaup á 47 þúsund fermetrum af atvinnuhúsnæði Reynslunni ríkari og opnar Wilson‘s Pizza á ný Stefna að opnun Fiskbúðarinnar við Sundlaugaveg í maí Anna Kristín nýr framkvæmdastjóri hjá atNorth Oculis komið á markað Viðskipti með bréf í Oculis hefjast á morgun Hættir sem fjármálastýra Ljósleiðarans Tekur við stöðu framkvæmdastjóra Grænna skáta Fækkuðu tímum í skriffinnsku um tugi klukkustunda á mánuði Breytinga þörf eigi Landsbankinn ekki að keppa á markaði Jón nýr formaður bankaráðs Landsbankans Sýn hættir við að selja vefmiðla og útvarp Sólin sest fyrir fullt og allt á Sælunni Opna verslun á Keflavíkurflugvelli þar sem Arion var áður Bein útsending: Hraunflæðihermar og hönnun hraunvarna Hafa náð nýjum sölusamningi í Bandaríkjunum Framkvæmdastjóri Jafnréttisstofu til Visku Sjá meira