Lærisveinar Guðmundar rassskelltu Egyptana í kvöld | Úrslitaleikur á móti Íslandi Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 6. janúar 2017 20:53 Guðmundur Guðmundsson gat verið ánægður með sína menn. Vísir/Getty
Guðmundur Guðmundsson, þjálfari danska landsliðsins í handbolta, gat verið ánægður með sína menn í kvöld. Danir unnu þá afar sannfærandi tíu marka sigur á Egyptum, 36-26, í Bygma-æfingamótinu. Danska landsliðið hefur unnið tvo fyrstu leiki sína á mótinu en mætir íslenska landsliðinu í úrslitaleik mótsins á sunnudaginn. Danska handboltalandsliðið er svo sannarlega búið að hrista af sér slyðruorðið síðan í fyrri hálfleik á móti Ungverjum í gær. Ungverjar voru þá fjórum mörkum yfir í upphafi seinni hálfleiks en danska liðið vaknaði þá af værum blundi og vann lokakafla leiksins með sjö mörkum. Staðan var 2-1 fyrir Egypta í byrjun leiks en þá komu tvö dönsk mörk í röð og Danir komust í framhaldinu í 7-4 og 10-6. Danir voru síðan fjórum mörkum yfir í hálfleik, 17-13. Danir voru síðan með örugga forystu allan seinni hálfleikinn og unnu á endanum með tíu marka mun. Ísland og Danmörk mætast á sunnudagskvöldið en það verður úrslitaleikur Bygma-mótsins. Dönum nægir jafntefli. Ungverjar gætu reyndar blandað sér í baráttuna með sigri á Egyptum fyrr um daginn. Íslensku strákarnir vita hvað þeir þurfa að gera fyrir leikinn.
Handbolti HM 2017 í Frakklandi Mest lesið Sænskur varnarjaxl ólétt og segir að ferlinum sé lokið Fótbolti Lárus Orri: „Breytast í eitthvað allt annað og liggja út um allan völl“ Íslenski boltinn Jón Þór ráðinn til Stjörnunnar Fótbolti Michael Oliver getur ekki dæmt fyrsta leikinn sinn á HM Fótbolti Fyrri hálfleikur Bandaríkjanna sá besti sem hann hefur séð Fótbolti Bandaríkin byrja sterkt á heimavelli Fótbolti Segir að það sé bara einn heimsklassaleikmaður í enska landsliðinu Fótbolti Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Handbolti Maður dagsins á HM: Ólst upp í Englandi en valdi Bandaríkin Fótbolti Braut nálgunarbann með því að heimsækja kærustu sína Sport Fleiri fréttir Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Sjá meira