Sveitarfélög verða fyrir tekjutapi vegna rangrar skráningar Airbnb íbúða Daníel Freyr Birkisson skrifar 23. nóvember 2017 10:00 Tapaðar tekjur Reykjavíkurborgar gætu numið hátt í milljarð vegna rangrar skráningar. Vísir/Anton Brink
Minnihluti íbúða sem leigðar eru út á Airbnb í lengur en 90 daga eða fyrir meira en tvær milljónir króna eru með tilskilin leyfi og skráningu í samræmi við lög og reglur. Þetta kemur fram í nýrri greiningu hagdeildar Íbúðalánasjóðs. Tölurnar benda til þess að hið minnsta séu 1.400 Airbnb leiguíbúðir rangt skráðar. Fyrirtækið Airdna birti gögn sem benda á að um 2.600 íbúðir og 900 stök herbergi hafi verið í svo mikilli útleigu að um væri að ræða atvinnurekstur samkvæmt gildandi lögum og reglum. Þær höfðu verið í útleigu í meira en 90 daga eða skilað meira en 2 milljónum króna í leigutekjur af Airbnb. Kröfur eru til staðar að rekstrarleyfi þurfi fyrir gistingu og þarf íbúðin að vera samþykkt af byggingarfulltrúa sem atvinnuhúsnæði. Við slíka úttekt hækka fasteignagjöld svo um munar. Þrátt fyrir það eru einungis 1.200 Airbnb leiguíbúðir af um 2.600 skráðar sem atvinnuhúsnæði. Ljóst er að sveitarfélög verða af verulegum tekjum árlega vegna rangrar skráningar leiguíbúða. Þetta sést best sé litið til Reykjavíkur en miðað við fyrstu níu mánuði ársins voru yfir 1.500 íbúðir í svo mikilli leigu að um væri að ræða atvinnurekstur. Einungis 385 íbúðir voru með rekstrarleyfi í flokkum I og II og aðeins 341 íbúð skráð sem atvinnuhúsnæði. Tapaðar tekjur Reykjavíkur gætu því numið hátt í milljarð ef miðað er við meðalfasteignamat.
Mest lesið Eins og Steve Jobs hafi verslað í fataskápinn hans Atvinnulíf „Þjóðaröryggismál að viðhalda þessari stétt“ Samstarf Hvenær getur þú hætt að vinna? Samstarf Afkoma umfram áætlanir Viðskipti innlent Fjölmenntu á vorviðburð Málningar og Slippfélagsins Samstarf Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Viðskipti innlent Súperdósin snýr aftur Neytendur Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Viðskipti innlent Þakefni sem standast rokið, rigninguna og tímans tönn Samstarf Ungir frumkvöðlar byggðu allt frá grunni Samstarf Fleiri fréttir Afkoma umfram áætlanir Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Gætu lagt 757-þotunum í haust Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Beint streymi: Fimmtán fá viðurkenningu fyrir góðan árangur í sjálfbærni Ráðast í breytingar í yfirstjórn Styrkáss Einbeita sér að kaffinu eftir lokun kaffihúsanna Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Haraldur selur fyrir 94,5 milljónir í Skaga Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Ríkið lagði Lárus með minnsta mun Bankaskattur kosti 323 þúsund á ári miðað við 50 milljóna lán Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Sólin sest á Guide to Europe Kjörbúðinni lokað og ein verslun eftir í bænum Sólmyrkvinn gæti virkjað forsenduákvæði kjarasamninga Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Himneskt ei meir Kaupa CCP aftur frá Kóreu Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Bensínverð hefur lækkað Sjá meira