Húsaleigan hækkaði minna en kaupverð Haraldur Guðmundsson skrifar 23. febrúar 2017 09:10 esta breyting á leiguverði milli janúar 2016 og 2017 var 25 prósenta hækkun á tveggja herbergja íbúðum á Suðurnesjum. Vísir/Vilhelm
Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu hafði hækkað um 11,5 prósent á tólf mánaða tímabili frá janúar 2016. Á sama tíma hafði söluverð íbúða á höfuðborgarsvæðinu hækkað um 16,3 prósent. Kaupverð fjölbýlis hafði þá hækkað um tíu prósentum meira en leiguverð frá upphafi ársins 2011. Þetta kemur fram í nýrri Hagsjá Hagfræðideildar Landsbankans. Í henni kemur fram að talnaupplýsingar um leiguverð í janúar síðastliðnum séu unnar upp úr rúmlega 430 þinglýstum leigusamningum. Til samanburðar voru samningarnir 470 í janúar 2016. „Leiguverð fyrir tveggja herbergja íbúðir er nær alls staðar töluvert hærra en á þriggja herbergja íbúðum sem er svo líka allsstaðar hærra en á stærstu íbúðunum. Eina undantekningin á þessu er Akureyri. Sums staðar er þessi munur verulegur, eins og í Kópavogi og austurhluta Reykjavíkur. Munur á leiguverði tveggja og þriggja herbergja íbúða er mestur í Kópavogi, 28 prósent, en er að meðaltali um 13 prósent á öllum svæðum. Munurinn á þriggja herbergja íbúðum og þeim stærri er mestur á Suðurnesjum, 28 prósent, en er að meðaltali 16 prósent. Leiguverðið er hæst fyrir allar stærðir íbúða í vesturhluta Reykjavíkur og lægst utan höfuðborgar-svæðisins, en annars er dreifingin þar á milli nokkuð jöfn,“ segir í Hagsjánni. Mesta breyting á leiguverði milli janúar 2016 og 2017 var 25 prósenta hækkun á tveggja herbergja íbúðum á Suðurnesjum og þar á eftir komu tveggja herbergja íbúðir í Kópavogi. Minnstu breytingarnar eru 14 prósent lækkun á minnstu íbúðunum á Akureyri og um tveggja prosenta hækkun á þriggja herbergja íbúðum í austurhluta Reykjavíkur. Vísitala leiguverðs hækkaði um 11,5 prósent á milli þessara tímabila. „Eins og oft hefur verið undirstrikað í Hagsjám Hagfræðideildar er jafnan um að ræða mikla dreifingu á bak við meðaltöl ýmissa stærða á fasteignamarkaði. Þá eru einnig töluverðar sveiflur á milli mælinga í einstökum mánuðum. Þessar aðstæður eiga ekki síður við um leigumarkaðinn en kaup- og sölumarkaðinn.“
Mest lesið Barilla og Himneskt víkja fyrir breiðara pastaúrvali Neytendur Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Viðskipti innlent Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Viðskipti innlent Högnuðust um hálfan annan milljarð Viðskipti innlent Innkalla milljónir bíla vegna innfelldra hurðahúna Viðskipti erlent Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Viðskipti innlent Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Viðskipti innlent Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Viðskipti innlent Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Viðskipti innlent Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Viðskipti innlent Fleiri fréttir Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Síminn orðinn Ásar hf Icelandair kaupir helming í dreggjum Play á 83 milljónir Ekkert fékkst upp í mörg hundruð milljóna króna kröfur Ekkert nýtt að frétta af boðuðum kaupum Telur ESB-viðræður engu breyta um verðbólgu og stýrivexti Minni íbúafjölgun minnkar þörfina á nýjum íbúðum Vaxtahækkun sé röng og illa tímasett Indó hækkar vexti vegna stýrivaxtahækkunar „Þetta er sagt af mikilli virðingu“ „Bull og vitleysa“ að hækkunin bíti ekki á verðtryggð lán Bein útsending: Opinn fundur um samspil stýrivaxta og verðbólgu „Það eru engin fórnarlömb hér“ Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtahækkun Hækka stýrivexti Elfa Ýr lætur af störfum hjá Fjölmiðlanefnd Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Benedikt langlaunahæsti bankastjórinn Fleiri en markaðurinn leggja við hlustir Sjá meira