Frestuðu söluferli Extreme Iceland Haraldur Guðmundsson skrifar 11. janúar 2017 11:00 Björn Hóarsson og synir hans Kári og Steinar eiga allt hlutafé Extreme Iceland.
Eigendur Extreme Iceland tóku fyrir áramót ákvörðun um að fresta söluferli þar sem bjóða átti fjárfestum að kaupa allt frá minnihlutaeign í ferðaþjónustufyrirtækinu og upp i allt hlutafé þess. Er nú horft til þess að fjárfestakynning í gegnum Fyrirtækjaráðgjöf Virðingar fari fram í byrjun mars eða eftir að ársreikningur Extreme Iceland fyrir árið í fyrra liggur fyrir. „Við ætlum að hafa reikninginn kláran 15. febrúar og þá tekur við uppfærsla á áreiðanleikakönnun og þá verður þessi kynning 1. mars í gegnum Virðingu,“ segir Kári Björnsson, framkvæmdastjóri og einn eigenda Extreme Iceland, í samtali við Markaðinn. Útlit er fyrir að tekjur Extreme Iceland, sem hóf starfsemi árið 2010, í fyrra hafi numið um 2,5 milljörðum króna og því fimmfaldast á einungis tveimur árum. Björn Hróarsson, stjórnarformaður fyrirtækisins, stofnaði félagið og er það í dag í eigu hans og sonanna Kára og Steinars í gegnum félag þeirra Umbrella ehf. Samkvæmt ársreikningi Extreme Iceland fyrir 2015 var fyrirtækið þá rekið með 108 milljóna króna hagnaði samanborið við 15 milljónir árið áður. Extreme Iceland býður meðal annars upp á norðurljósa-, jökla og jeppaferðir.Fréttin birtist fyrst í Markaðinum, fylgiriti Fréttablaðsins um viðskipti og efnahagsmál.
Mest lesið Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Viðskipti innlent Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Viðskipti innlent Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Viðskipti innlent Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Viðskipti innlent Vara við skordýrum í chia-fræjum Neytendur Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Viðskipti innlent Kanada svarar tollum Bandaríkjastjórnar Viðskipti erlent Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Viðskipti innlent Atvinnuleysi jókst í júlí Viðskipti innlent Nýr og ódýrari valkostur fyrir fyrirtæki sem þurfa að losa úrgang Samstarf Fleiri fréttir Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Síminn orðinn Ásar hf Icelandair kaupir helming í dreggjum Play á 83 milljónir Ekkert fékkst upp í mörg hundruð milljóna króna kröfur Ekkert nýtt að frétta af boðuðum kaupum Telur ESB-viðræður engu breyta um verðbólgu og stýrivexti Minni íbúafjölgun minnkar þörfina á nýjum íbúðum Vaxtahækkun sé röng og illa tímasett Indó hækkar vexti vegna stýrivaxtahækkunar „Þetta er sagt af mikilli virðingu“ „Bull og vitleysa“ að hækkunin bíti ekki á verðtryggð lán Sjá meira