Kirkjusóknir reknar með miklum hagnaði 15. nóvember 2017 11:00 Hallgrímskirkja skilaði 80 milljóna króna hagnaði í fyrra.
Þjóðkirkjan Kirkjusóknir á landinu voru reknar með rúmlega 400 milljóna króna hagnaði á síðasta ári. Sóknargjöld kirkjusókna var um tveir milljarðar króna en aðrar tekjur um 900 milljónir króna. Hrein eign kirkjusókna landsins var í árslok um 30 milljarðar íslenskra króna. Ríkissjóður greiðir sóknum landsins sóknargjöld, sem er ákveðin fjárhæð á mánuði vegna hvers einstaklings innan kirkjunnar. Gjald þetta var á árinu 2016 rúmlega tveir milljarðar króna. Sóknum landsins ber að skila rekstraryfirliti til ríkisendurskoðunar á ári hverju. Af þeim 267 sóknum hafði Ríkisendurskoðun fengið til sín 234 ársreikninga til skoðunar. Helgi Hrafn Gunnarsson, þingmaður Pírata á þessu kjörtímabili, þykir ársreikningar þessara sókna um margt áhugverðir og þá einkum sérstakar sóknir. „Við fyrstu sýn er mjög áhugavert að skoða Hallgrímskirkjusókn þar sem hún skilar áttatíu milljóna króna hagnaði. Sóknin fær um 33 milljónir í sóknargjöld úr ríkissjóði en aðrar tekjur kirkjunnar nema um 270 milljónum króna. Hver er þörfin í því tilfelli til að veita þessari sókn sóknargjöld?“ spyr Helgi Hrafn. „Þó við myndum taka sóknargjöldin alfarið frá kirkjunni væri kirkjan samt sem áður rekin með fimmtíu milljóna króna hagnaði,“ bætir Helgi Hrafn við. Fréttablaðið sagði frá því í byrjun árs að Þjóðkirkjan teldi sig hlunnfarna af ríkinu. Íhugaði biskup því alvarlega að stefna ríkinu fyrir vangoldin sóknargjöld. Taldi þjóðkirkjan ríkið seilast ofan í vasa kirkjunnar af mikilli hörku. Hundruð milljóna vantaði í sóknargjöld að mati kirkjuráðs þar sem innheimt sóknargjöld af sóknarbörnum skiluðu sér ekki að fullu til ríkis. Félögum í hinni íslensku þjóðkirkju hefur stöðugt fækkað á þessari öld og er svo komið að færri en sjö af hverjum tíu Íslendingum eru meðlimir í kirkjunni.-sa
Mest lesið Óttast að færri leiti sér aðstoðar Innlent Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Innlent „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Innlent „Mikið hitaefni en þessi texti á að vera hlutlaus“ Innlent Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár Innlent Robinson hafi lýst eftirsjá Erlent Segja Reykjanesbæ greiða þremur bæjarstjórum laun Innlent Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Innlent Íbúar Flóahrepps vilja ekki sameinast öðrum Innlent ESB-deilan harðnar eftir ummæli erlendra ráðamanna Innlent Fleiri fréttir Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Óttast að færri leiti sér aðstoðar Íbúar Flóahrepps vilja ekki sameinast öðrum Kaupin hjá Gærunum gerast í fláningssalnum „Mikið hitaefni en þessi texti á að vera hlutlaus“ ESB-deilan harðnar eftir ummæli erlendra ráðamanna Segja Reykjanesbæ greiða þremur bæjarstjórum laun Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Lögreglan þekkti óprúttna aðila á upptökum Krafa Íslands um undanþágur vekur spurningar í ESB Segir skoðanir Ólafs Ragnars ekkert ofboðslega fréttnæmar Opna fyrir umferð á morgun Fjárhagslegt tjón netbrota á árinu nemur hundruðum milljóna Namibíumenn krefjast skaðabóta í Samherjamálinu Hafnaði á skilti Þessi sóttu um starf bæjarstjóra Fjallabyggðar Starfshópur um gervigreind tekinn til starfa Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Öll málning þrifin af kirkjutröppunum Energy Observer komið til Reykjavíkurhafnar „Eldgamlir bekkir og kompur sem hjúkrunarfræðingum var holað í“ Sendi fimmtán ára skilaboð og typpamynd: „Riða i kvöld?“ Strandaði á skeri rétt utan við Húsavík Breskt herskip siglir um Hvalfjörð „Kemur ekki á óvart að þetta komi fram í Morgunblaðinu“ Fannar leiðir hagræðingu í Reykjanesbæ Sjávarútvegurinn og ESB, vopnagjöf og heilbrigðismál Hanna Katrín segir rasista vilja endurskilgreina hlutverk íslenska fánans Skemmdarvargarnir enn ófundnir Sjá meira