Hagnaður Arion banka minnkar um helming milli ára Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 13. febrúar 2017 21:41 Afkoman var viðunandi. Vísir/Pjetur
Hagnaður Arion banka á árinu 2016 nam 21,7 milljörðum króna samanborið við 49,7 milljarða árið 2015. Hagnaður bankans minnkar því um rúmlega helming á milli ára. Afkoman var viðunandi og í takt við væntingar, segir í tilkynningu frá Höskuldi H. Ólafssyni, bankastjóra Arion banka. Í tilkynningunni kemur fram að grunnstarfsemi bankans stendur vel og að fjárhagsstaða bankans heldur áfram að styrkjast. Arion banki sé í dag alhliða fjármálafyrirtæki með sterka stöðu bæði á einstaklings- og fyrirtækjamarkaði og lánasafn bankans endurspegli það vel. Árið 2016 hafi einkennst af fjárfestingum til framtíðar í þjónustu bankans. Kaup bankans á tryggingafélaginu Verði eru gott dæmi um það en þau gengu í gegn á árinu. Þar með bætast skaðatryggingar við þjónustuframboð bankans. Í tilkynningunni kemur jafnframt fram gagnrýni frá Höskuldi á stjórnvöld, fyrir að framlengja bankaskattinn, sem hafi átt að vera tímabundinn en sé nú hluti af langtíma ríkisfjármálaáætlun. Lagt er áherslu á að mikilvægt að þessi skattlagning verði endurskoðuð. Bent er á að sambærilegur skattur leggst ekki á aðrar innlendar atvinnugreinar né á erlenda banka sem umsvif hafi hér á landi og lána til íslenskra fyrirtækja. Því sé hér á ferðinni sértæk skattlagning sem geri bönkum erfitt fyrir um vik í samkeppni, bæði á innlendum markaði en einnig í samkeppni við erlend fjármálafyrirtæki á íslenskum markaði. Bankar keppi á innlendum markaði við lífeyrissjóði þegar kemur að veitingu íbúðalána en lífeyrissjóðir greiði hvorki tekjuskatt né fjársýslu- eða bankaskatt.
Mest lesið Nú er tíminn fyrir þak og klæðningar: „Við horfum á veðrið, ekki dagatalið“ Samstarf Sektað vegna auglýsinga fyrir „nikótínpúðajóladagatal“ Viðskipti innlent Lýsa magnesíumverksmiðju sem „andstæðu loftslagsverkfræði“ Viðskipti innlent Innkalla nautahakk vegna gruns um salmonellu Viðskipti innlent Rekstur borgarinnar neikvæður um 5,3 milljarða í fyrra Viðskipti innlent Löggan bankaði upp á á skírdag Neytendur „Flestir sem eru á þessum lista eru dánir“ Neytendur Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Viðskipti innlent Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Viðskipti innlent Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Rekstur borgarinnar neikvæður um 5,3 milljarða í fyrra Sektað vegna auglýsinga fyrir „nikótínpúðajóladagatal“ Lýsa magnesíumverksmiðju sem „andstæðu loftslagsverkfræði“ Innkalla nautahakk vegna gruns um salmonellu Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Vara við svikaherferð í nafni bankans Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Endurræsing hafin hjá Norðuráli B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Sjá meira