Pitsurisi greiðir Birgi Bieltvedt 62 milljónir á ári fyrir ráðgjöf Haraldur Guðmundsson skrifar 20. desember 2017 07:30 Domino's í Bretlandi á nú 95 prósent í rekstrinum hér á landi en hér eru 22 pitsustaðir. vísir/eyþór
Fjárfestingafélagið B2B, í eigu Birgis Þórs Bieltvedt, mun fá greitt árlega um 500 þúsund evrur, jafnvirði 62 milljóna króna, fyrir ráðgjafarstörf fyrir Domino’s í Bretlandi (Domino’s Pizza Group, DPG). Birgir mun samkvæmt nýju samkomulagi veita DPG ráðgjöf varðandi rekstur og frekari uppbyggingu pitsukeðjunnar hér á landi út maí 2024, tveimur árum skemur í Noregi og Svíþjóð, og fyrirhugaða útrás til Finnlands og Eystrasaltsríkjanna. Þetta kemur fram í nýrri hluthafakynningu DPG, sem er skráð í bresku kauphöllinni, en það keypti í síðustu viku 44,3 prósent til viðbótar í íslenska einkahlutafélaginu Pizza Pizza, eiganda og sérleyfishafa Domino’s á Íslandi, Noregi og Svíþjóð. Samkvæmt henni telur stjórn DPG mikilvægt að Birgir komi áfram að uppbyggingu vörumerkisins í ljósi reynslu hans og tengsla við sérleyfishafann á heimsvísu, Domino’s Pizza International Franchising (DPIF). Því hafi félagið samið við Birgi þann 14. desember síðastliðinn um að hann haldi áfram ráðgjafarstörfum og vinni í samstarfi við DPG að því að tryggja sérleyfissamning fyrir Finnland og Eystrasaltsríkin fyrir júní 2021. Fari svo að Birgir landi þeim samningi við DPIF verða tvö ný dótturfélög stofnuð utan um útrásina. DPG mun eiga 90 prósenta hlut en Birgir eða félag á hans vegum hin tíu prósentin. Fjárfestirinn mun þá fá greiddar 500 þúsund evrur í ráðgjafarþóknun sem geta einungis farið upp í kaup hans á hlutafénu í dótturfélögunum tveimur. Þá mun Birgir einnig eiga kauprétt á fimm prósentum til viðbótar í báðum félögunum. Kynningin inniheldur einnig upplýsingar um rekstur Domino’s á Íslandi á fyrri helmingi þessa árs. Tekjur félagsins námu þá 2,7 milljörðum króna samanborið við 2,4 milljarða á sama tímabili í fyrra. Rekstrarhagnaður (EBITDA) batnaði um fjórðung milli ára og nam 382 milljónum. Þá var hagnaður félagsins eftir skatta tæplega 300 milljónir og jókst um 38 prósent en pitsustöðum keðjunnar fjölgaði milli áranna úr 19 í 22. Þá er bent á að veltan jókst um 260 prósent milli 2010 og 2016. Domino’s á Íslandi státi þar að auki af mestri sölu per fermetra (e. sales density) af öllum þeim löndum þar sem pitsur Domino’s séu bakaðar, en þau eru alls 91.Birgir Þór Bieltvedt steig niður úr stóli stjórnarformanns Domino´s á Íslandi fyrr á árinu.Samkvæmt fréttatilkynningu síðasta fimmtudag um kaup DPG á 44,3 prósenta hlut í Pizza Pizza greiðir fyrirtækið jafnvirði 3,7 milljarða króna fyrir bréfin. Breska félagið á nú 95,3 prósenta hlut en það keypti upphaflega 49 prósent haustið 2016, á 4,2 milljarða króna á þáverandi gengi. Bætti það svo við öðrum tveimur prósentum í mars síðastliðnum og greiddi 180 milljónir fyrir hlutinn. Birgir steig þá niður úr stóli stjórnarformanns og með nýjustu sölunni hverfur fjárfestingarfélagið Eyja, í eigu Birgis og eiginkonu hans, Eyglóar Kjartansdóttur, út úr hluthafahópnum ásamt Högna Sigurðssyni. Aðalfundur DPG verður haldinn 11. janúar og kaupsamningurinn, og þar af leiðandi nýi ráðgjafarsamningurinn við Birgi, verður þá borinn undir hluthafa breska félagsins. Það á einnig rekstur keðjunnar í Bretlandi, 17 pitsustaði í Sviss og þriðjungshlut í þýskum sérleyfishafa Domino’s.Fréttin birtist fyrst í Markaðnum, fylgiriti Fréttablaðsins um viðskipti og fjármál.
Mest lesið Framkvæmdastjóri Smáríkisins ákærður Viðskipti innlent Pósturinn hættir að senda til Bandaríkjanna: Geti ekki sett fimmtán prósenta toll á allt Viðskipti innlent Melabúðarbræður með hálfan milljarð í fyrra Viðskipti innlent Skattakóngurinn flytur úr landi Viðskipti innlent Samherjahjónin fyrrverandi langtekjuhæst Viðskipti innlent Tuttugu tonn af íþróttanammi á sextíu dögum Neytendur Hvað þurfum við að eiga mikið til að geta hætt að vinna? Viðskipti innlent Komi á óvart hve lítið er keppt um lægsta verðið Neytendur Kannast ekki við „lífróður“ Heimildarinnar sem fækkar útgáfudögum Viðskipti innlent „Ekki bara steypa heldur fólk og framtíð“ Samstarf Fleiri fréttir Pósturinn hættir að senda til Bandaríkjanna: Geti ekki sett fimmtán prósenta toll á allt Melabúðarbræður með hálfan milljarð í fyrra Framkvæmdastjóri Smáríkisins ákærður Pósturinn hættir að senda til Bandaríkjanna á mánudaginn Samherjahjónin fyrrverandi langtekjuhæst Kannast ekki við „lífróður“ Heimildarinnar sem fækkar útgáfudögum Skattakóngurinn flytur úr landi Setja tvo milljarða til í fiskeldið sem tapar hundruðum milljóna „Framboð á markaði er ekki það sem neytendur vilja kaupa“ Móðurfélag útgefanda Moggans tapaði hundruðum milljóna Segir háa stýrivexti bitna á ákveðnum hópi og boðar aðhald í fjárlagafrumvarpi Keyra á orkudrykkjamarkaðinn Kaupa Gompute „Ég bið almenning að hafa þolinmæði með okkur“ Ósáttir með ákvörðun peningastefnunefndar Muni ekki hika við að hækka vexti Sektað fyrir að auglýsa of mikið fyrir Áramótaskaupið Kristján og Leó kaupa fyrrverandi höfuðstöðvar Landsvirkjunar Endurbættur Kaffivagn opnar aftur í dag Gleðiefni að fjármálaráðherri tali um aðhald í ríkisfjármálum Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðunina Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum Ráðin til Fossa fjárfestingarbanka Birta nýja ákvörðun um stýrivexti í dag Hvað þurfum við að eiga mikið til að geta hætt að vinna? Herra Hnetusmjör tekjuhæstur í Iceguys Sante fer í hart við Heinemann Davíð trónir enn og aftur á toppnum Runólfur á toppi tekjulistans yfir launahæstu embættismennina og forstjórana Ólafur Ragnar með rúma milljón meira en næsti maður Sjá meira
Pósturinn hættir að senda til Bandaríkjanna: Geti ekki sett fimmtán prósenta toll á allt Viðskipti innlent
Pósturinn hættir að senda til Bandaríkjanna: Geti ekki sett fimmtán prósenta toll á allt Viðskipti innlent