Viðskipti innlent

24 ára og ráðin ritstjóri Norðurlands: „Ég er að henda mér í djúpu laugina“

Kristín Ólafsdóttir og Margrét Helga Erlingsdóttir skrifa
Ingibjörg Bergmann Bragadóttir er nýr ritstjóri blaðsins Norðurlands.
Ingibjörg Bergmann Bragadóttir er nýr ritstjóri blaðsins Norðurlands. Ingibjörg bergmann bragadóttir
Ingibjörg Bergmann Bragadóttir hefur verið ráðin nýr ritstjóri Norðurlands, áður Akureyrar vikublaðs. Þá hefur Ámundi Ámundason, eigandi Fótspors ehf., tekið yfir útgáfu landshlutablaða sem áður voru í eigu Vefpressunnar ehf. en stefnt er að útgáfu hins nýja Norðurlands þann 14. desember næstkomandi.

Ámundi tekur blöðin yfir

Útgáfa á Akureyri vikublaði var stöðvuð í lok nóvember síðastliðnum í kjölfar eigendaskipta hjá Vefpressunni ehf. Öll landshlutablöð í eigu Pressunnar voru sett á sölu en um var að ræða Akureyri Vikublað, Austurland, Reykjanes, Suðra, Vesturland, Vestfirði, Ölduna, Sleggjuna, Birtu, Hafnarfjörð, Kópavog og Reykjavík Vikublað. Vefpressan keypti útgáfuréttinn á blöðunum árið 2015 af Fótspori ehf. en Fótspor hefur nú tekið aftur yfir útgáfu blaðanna.

Ámundi Ámundason.Vísir/Ernir
Ámundi Ámundason, eigandi Fótspors ehf., staðfesti þetta í samtali við Vísi í dag. Hann sagðist hafa tekið yfir rekstur blaðanna og þau verði áfram gefin út, einhver þó undir öðrum nöfnum. Akureyri vikublað heitir nú til að mynda Norðurland.

„Þú verður bara að ákveða þig núna“

Ingibjörg Bergmann Bragadóttir hefur verið ráðin nýr ritstjóri Norðurlands. Hún er 24 ára gömul, fædd árið 1993, og útskrifaðist úr Menntaskólanum á Akureyri árið 2012. Ingibjörg lærði frönsku við Sorbonne-háskólann í París að lokinni útskrift og hóf svo nám í fjölmiðlafræði við Háskólann á Akureyri. Þaðan útskrifaðist hún í vor og stefnir enn fremur á að útskrifast sem framreiðslukona vorið 2018.

Ingibjörg tekur við starfi ritstjóra af Indíönu Hreinsdóttur. Í samtali við Vísi segir Ingibjörg að stuttur aðdragandi hafi verið að ráðningunni en Ámundi, eigandi Fótspors ehf., bauð henni starfið í fyrradag.

„Hann vildi bara bjóða mér þetta. Ég hringdi í hann upphaflega til þess að segja honum að ég væri opin og spennt fyrir stöðunni og þá bara segir hann: „Já, þú verður bara að ákveða þig núna,“ og áður en ég vissi af bauð hann mig velkomna til starfa,“ segir Ingibjörg.

Sjá einnig: Vefpressan tekur yfir Akureyri og Reykjavík vikublöð

Verður létt og skemmtilegt

Áætlað er að blaðið komi út fjórtánda desember næstkomandi svo knappur tími er til stefnu. „Þetta er pínu stressandi,“ segir Ingibjörg og skellir upp úr. „Ég er að henda mér í djúpu laugina.“

Aðspurð segir Ingibjörg að blaðið muni viðhafa svipaða stefnu og á Kaffinu, vefriti sem Ingibjörg stofnaði og heldur úti ásamt öðrum. Þá segist Ingibjörg jafnframt ætla að halda áfram störfum sínum hjá Kaffinu meðfram ritstjórastarfinu.

„Nálgunin mín er að hafa þetta létt og skemmtilegt. Ég er ekki að fara að kafa í einhverja skandala hjá bæjarstjórninni. Þetta verður ekki rannsóknarblað Akureyringa. Þetta verður svolítið svipað og við erum að gera á Kaffinu, fréttir og afþreyingarefni í bland.“

Þá er Ámundi sjálfur ánægður með valið á ritstjóranum.

„Þetta er frábær kona, tuttugu og fjögurra ára gömul, listaspíra í fjölmiðlafræði.“


Tengdar fréttir

Uppsagnir hjá Pressunni: Allar eignir til sölu fyrir „skynsamlegt verð“

Starfsfólki Pressunnar hefur verið sagt upp. Um er að ræða tvo launamenn sem hafa starfað fyrir félagið. Ómar R. Valdimarsson, nýr stjórnarmaður, segir nýja stjórn vera í þeim fasa að ná utan um rekstur blaðanna. Allar eignir félagsins séu til sölu fyrir „skynsamlegt verð“.

Segja nýkjörna stjórn Pressunnar ekki lögmæta

Björn Ingi Hrafnsson og Arnar Ægisson, hluthafar í Pressunni, segja nýja stjórn ekki enn hafa tilkynnt breytingar til fyrirtækjaskrár ríkisskattstjóra. Sveinn Andri Sveinsson sendi bréf á Ómar Valdimarsson, sem nýkjörinn er í stjórnina.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×