Markalaust á Parken │ Myndband

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Danmörk og Írland gerðu markalaust jafntefli í bragðdaufum leik á Parken í kvöld.

Leikurinn bar þess merki að mikið væri í húfi, en um var að ræða fyrri umspilsleik liðanna fyrir Heimsmeistaramótið í knattspyrnu næsta sumar.

Yussuf Poulsen var nærri því að tryggja Dönum sigurinn með skalla á 89. mínútu en Darren Randolph gerði vel í að verja frá honum.

Danir voru ákveðnari og sóttu stíft undir lok leiksins, en allt kom fyrir ekki og liðin urðu að sætta sig við markalaust jafntefli.

Stuðningsmenn danska liðsins voru langt frá því að vera sáttir með frammistöðu sinna manna og bauluðu á liðið þegar flautað var til leiksloka.

Seinni leikurinn fer fram í Írlandi á þriðjudaginn.

Allt það helsta úr leiknum má sjá í spilaranum í fréttinni.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira