Brexit: Bretland fær tvær vikur til að útskýra ákveðin lykilatriði Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 10. nóvember 2017 15:04 David Davis og Michel Barnier á blaðamannafundinum í dag. vísir/getty
Evrópusambandið gefur yfirvöldum í Bretlandi tvær vikur til þess að útskýra ákveðin lykilatriði varðandi útgöngu landsins úr ESB eða að öðrum kosti slaka á kröfum sínum. Þetta kom fram í máli Michel Barnier á blaðamannafundi í Brussel í dag en Barnier er aðalsamningamaður ESB í Brexit. Barnier átti fund í dag með David Davis, Brexit-ráðherra Bretlands, sem segir að það sé kominn tími til fyrir bæði ESB og Bretland að fara að vinna að því að finna lausnir. Á blaðamannafundinum sagði Barnier að Bretland þyrfti að gefa það upp á næstu tveimur vikum hvað það hyggst borga til ESB svo það geti uppfyllt skilyrði sín gagnvart sambandinu í tengslum við Brexit. Annars munu samningaviðræðurnar ekki hafa skilað tilætluðum árangri áður en Evrópuráðið kemur saman til fundar í desember. Fundur Barnier og Davis í dag sneri að borgaralegum réttindum, írsku landamærunum og svo upphæðinni sem ESB vill fá frá Bretlandi við útgönguna úr sambandinu. Þeir sögðu báðir að samningaviðræðunum miðaði áfram hvað varðar það að ríkisborgarar ESB muni halda sínum réttindum í Bretlandi eftir Brexit.
Brexit Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Innlent Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent Lét ákærða vita af andlátinu: „Hann var í miklu uppnámi“ Innlent Á spítala eftir misheppnaða aftöku Erlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Fleiri fréttir Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Sjá meira