Handtekin fyrir tíst um Mugabe Jóhann Óli Eiðsson skrifar 6. nóvember 2017 06:00 O'Donovan sést hér fyrir miðju skömmu áður en hún var leidd fyrir dóm og úrskurðuð í gæsluvarðhald. vísir/epa
Bandarísk blaðakona, sem starfar í Simbabve, hefur verið handtekin fyrir að móðga Robert Mugabe, forseta landsins. Konan sendi frá sér tíst sem yfirvöldum þótti niðrandi. „Við erum leidd áfram af sjálfelskum og sjúkum manni,“ tísti Martha O‘Donovan. Með tístinu fylgdi mynd sem gaf til kynna að lífinu væri haldið í Mugabe með hjálp tækja. Brot O‘Donovan, að tala illa um þjóðarleiðtogann, getur varðað allt að 20 ára fangelsisvist. Mugabe, sem er 93 ára, hefur stýrt Simbabve frá árinu 1980, fyrst sem forsætisráðherra en síðar sem forseti. Með hækkandi aldri hefur dregið úr því að hann komi fram opinberlega og eru margir sem telja að heilsa hans leyfi varla að hann stýri landinu áfram. Handtaka O‘Donovan er sú fyrsta eftir að sérstöku netmálaráðuneyti var komið á fót í landinu í síðasta mánuði. Tilgangur þess er að hafa auga með samfélagsmiðlum og heimasíðum til að sjá hvort eitthvað ólöglegt eigi sér stað þar. Mikið hefur verið rætt og ritað um Mugabe, og stjórn hans, á samfélagsmiðlum í landinu og aldrei meir en í fyrra. Var ráðuneytinu komið á fót vegna þessa.
Birtist í Fréttablaðinu Tengdar fréttir Mugabe sagður stjórna úr sjúkrarúmi Hinn 93 ára gamli forseti er nú staðsettur í Singapore vegna læknismeðferðar sem er sú þriðja á árinu. 10. júlí 2017 16:31 Mest lesið Hrindir af stað söfnun fyrir móður stúlkunnar sem lést í Suður-Afríku Innlent Breiddi út faðminn fyrir rasista: „Þið þurfið ekki að biðjast afsökunar á að vera hvít lengur“ Erlent Sprengdu rússneskan hershöfðingja í loft upp í Moskvu Erlent „Þetta hefur verið þungur tími“ Innlent Undirbúningur árásarinnar stóð yfir í marga mánuði Erlent Naut aðstoðar samskiptasérfræðinga vegna veiðigjaldamálsins Innlent Trump skipar sendifulltrúa fyrir Grænland Erlent Málið sem Trump getur ekki losað sig við Erlent Varð vitni að ótrúlegum norðurljósum: „Mér fannst þetta magnað“ Innlent „Ég vil ekki nokkurn tímann sjá neitt svona aftur“ Innlent Fleiri fréttir Breiddi út faðminn fyrir rasista: „Þið þurfið ekki að biðjast afsökunar á að vera hvít lengur“ Sprengdu rússneskan hershöfðingja í loft upp í Moskvu Undirbúningur árásarinnar stóð yfir í marga mánuði Trump skipar sendifulltrúa fyrir Grænland Segir unnið að því að móta sameiginlega nálgun Bandaríkjanna, Úkraínu og Evrópu Sýknaður af nauðgun eftir að hafa verið skimaður fyrir sjaldgæfri svefnröskun Málið sem Trump getur ekki losað sig við Grunaður um manndráp eftir að tveggja ára drengur féll úr blokk Fóru um borð í vélvana rússneskt skip Baulað á Albanese á minningarathöfn á Bondi-strönd Kvarta yfir ritskoðun Epstein-skjala: „Við vitum ekki hvað við vitum ekki“ Níu skotnir til bana á krá Sextán ára fékk greitt fyrir að færa Epstein stúlkur Ljósmyndir horfnar úr Epstein-skjölunum, þar á meðal ein af Trump Vilja dauðarefsingu af borðinu vegna hagsmunaáreksturs ráðherra Pútín sagður hafa valið Witkoff Gerðu umfangsmiklar árásir gegn ISIS í Sýrlandi Það helsta úr fyrsta skammti Epstein-skjalanna Epstein-skjölin birt Draga tilvist neðanjarðarhafs á Títan í efa Réðust á skip úr skuggaflotanum þúsundir kílómetra frá Úkraínu Enn fleiri myndir úr safni Epsteins: „En hún vill þúsund dali fyrir hverja stúlku“ Trump vill til tunglsins fyrir 2028 Herða reglur og ráðast í endurkaup á skotvopnum Morðinginn í Brown háskóla fannst látinn Evrópa samþykkir 90 milljarða evra lán til Úkraínu Rannsaka tengsl skotárásarinnar við annað morð Sex um borð í einkaþotu sem hrapaði Beita dómara ICC refsiaðgerðum vegna Ísrael Taka á kvenfyrirlitningu með sérstöku námskeiði fyrir drengi Sjá meira
Mugabe sagður stjórna úr sjúkrarúmi Hinn 93 ára gamli forseti er nú staðsettur í Singapore vegna læknismeðferðar sem er sú þriðja á árinu. 10. júlí 2017 16:31
Breiddi út faðminn fyrir rasista: „Þið þurfið ekki að biðjast afsökunar á að vera hvít lengur“ Erlent
Breiddi út faðminn fyrir rasista: „Þið þurfið ekki að biðjast afsökunar á að vera hvít lengur“ Erlent