Ég á fullt af alnöfnum Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 7. nóvember 2017 10:15 Ingibjörg útilokar ekki að skrifa bók nú þegar hún er hætt að vinna. Fréttablaðið/Valli
Margir þurfa að láta af störfum þegar sjötugsafmælið brestur á svo Ingibjörg Hafstað kennari sem fyllir sjöunda tuginn í dag er spurð hvort um meiriháttar tímamót sé að ræða. „Nei, ég er nú eiginlega hætt að vinna reglubundið, veiktist í fyrra svo það kom af sjálfu sér. Nú tek ég bara að mér verkefni. Ég kenndi útlendingum íslensku í mörg ár. Stofnaði lítið fyrirtæki utan um það sem heitir Fjölmenning og hafði nóg að gera, ég hefði getað haldið áfram þess vegna.“ Þegar Ingibjörgu er slegið upp í Íslendingabók kemur í ljós að í hennar formæðra- og feðrahópi eru auk Hafstaðs, ættarnöfnin Hafstein, Scheving, Stephensen og Kvaran. Hún hlær þegar hún er spurð hvort það sé gaman að heita Hafstað? „Ég reyndi einu sinni að hætta að nota þetta nafn en það tókst ekki. Nafnið er það mikill hluti af manni. Ég heiti Ingibjörg Sigurðardóttir og þar var fræg skáldkona fyrir á fleti. Amma hét Ingibjörg og ég á fullt af alnöfnum.“ Hún segir Hafstaðsnafnið koma úr Skagafirði. „Afi minn bjó í Vík í Skagafirði, það er óðalið og þar býr ein nafna mín.“ Þótt Ingibjörg reki ættir sínar norður kveðst hún hafa alist upp í útlöndum að mestu leyti. „Ég er diplómatabarn, fædd í Moskvu og þaðan fóru foreldrar mínir, Sigurður Hafstað og Ragnheiður Kvaran, til Svíþjóðar, svo til Noregs, síðan til Frakklands og aftur til Moskvu svo það var mikið rót á okkur,“ útskýrir hún. „Ég mundi ekki gera mínu barni það að alast upp á svo mörgum og ólíkum stöðum, held að það sé ekkert hollt en ég lærði mörg tungumál og það hefur komið sér vel í kennslu fyrir útlendinga.“ Nú þarf Ingibjörg að rjúka því hún á tíma hjá tannlækni uppi á Akranesi en hún hefur pottþétt frá mörgu að segja, svo það væri efni í heila bók. Kemur sú bók kannski einhvern tíma? „Það gæti bara vel verið nú þegar ég er hætt að vinna!“
Mest lesið Ein pilla dró Panettiere til dauða Lífið Stjörnulífið: Í fyrsta skipti í bikiníi í útlöndum Lífið „Ég ætla að sofa heila eilífð núna“ Tónlist Heldur sig til hlés og lifir skírlífi Lífið Vala Matt kom heljarinnar búslóð fyrir í sextíu fermetra íbúð Lífið 50+: Svefnherbergisskilnaður Áskorun Tekur árásum á samfélagsmiðlum fagnandi Lífið Hátt í þúsund manns mættu í matar- og vínveislu Innnes Lífið samstarf Hið alræmda „Epstein drap sig ekki“-samsæri Lífið „Ég byrjaði að lesa kaflann og fór bara að gráta“ Lífið Fleiri fréttir Ed Sheeran sparkar Mackelmore Hið alræmda „Epstein drap sig ekki“-samsæri Ein pilla dró Panettiere til dauða Heldur sig til hlés og lifir skírlífi Vala Matt kom heljarinnar búslóð fyrir í sextíu fermetra íbúð Stjörnulífið: Í fyrsta skipti í bikiníi í útlöndum „Ég byrjaði að lesa kaflann og fór bara að gráta“ Skúli Jón og Jennifer gengin í hnapphelduna Tekur árásum á samfélagsmiðlum fagnandi Krakkatía vikunnar: Tollering, Sims og Einar Áskell Lady Gaga orðin mamma Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Presturinn sem hataði kristinfræði Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Pétur og Birgitta nýtt par Sigrún Ósk mætt á RÚV Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Hvað veistu um... gönguleiðir? „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Leiðir skilja hjá leikhúspari Stærðarinnar hola gleypti innkeyrslu Cage Sjá meira