Öllum íbúum gert að yfirgefa heimili sín Stefán Ó. Jónsson skrifar 28. september 2017 07:53 Fyrr í vikunni mátti sjá mikinn reyk stíga upp úr fjallinu. Rauði Krossinn
Þúsundir eyjaskeggja hafa verið beðnir um að yfirgefa heimili sín á eyju í Vanúatú þar sem allt virðist stefna í eldgos. Stjórnvöld eyjaklasans segjast ekki vilja taka neina áhættu og hafa því farið fram á að allir 11 þúsund íbúar eyjunnar Ambae flýi við fyrsta tækifæri. Stjórnvöld munu leggja til báta við björgunina en búist er við að aðgerðirnar gætu staðið yfir til 6. október. Íbúarnir verði fyrst um sinn fluttir á nærliggjandi eyjar þar sem komið verður upp tjaldbúðum. Ríflega 1.9 milljónum dala, rúmlega 200 milljónum króna, verður varið til verkefnisins. Íbúi á eyjunni segir í samtali við Guardian að reykjarstrókur stígi nú upp frá eldfjallinu Monaro og að reglulega heyrist drunur djúpt innan úr fjallinu. Búið er að hækka viðvörunarstigið á eyjunni sem stendur nú í fjórum stigum af fimm. Hæsta stigið gerir ráð fyrir meiriháttar eldhræringum. Alls er búið á 65 eyjum á Vanúatú sem staðsettar eru í miðju Kyrrahafinu, mitt á milli Ástralíu og Havaí.
Vanúatú Mest lesið Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Innlent Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Innlent Of þung en annars hraust á Ozempic Innlent Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Innlent Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Innlent Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Innlent Slasaður eftir hestaslys í Ölfusi Innlent Segja grafalvarlegt mál að fresta atkvæðagreiðslu Innlent Myndband sýnir árás Diddy Erlent Fleiri fréttir Gantz hótar að segja af sér vegna ósættis við Netanjahú Ástand Fico enn alvarlegt Býst við aukinni sókn Rússa Beitti neitunarvaldi gagnvart umdeildum fjölmiðlalögum Myndband sýnir árás Diddy Færeyingar felldu frumvarp um fóstureyðingar Þrjátíu ár fyrir árásina á mann þingforsetans Segir Rússa ekki hafa í hyggju að taka Kharkív Viðtal á Stöð 2 kveikir upp í færeyskum stjórnmálum Reyndi að kveikja í bænahúsi gyðinga og var skotinn til bana Spánverjar neita skipi með vopn innanborðs um að leggja að bryggju „Einfari“ ákærður fyrir tilræðið við Fico Hver er Robert Fico? Neyðarástandi lýst yfir á Nýju-Kaledóníu eftir miklar óeirðir Ágreiningur innan stjórnarinnar brýst upp á yfirborðið Hægriflokkar ná saman um myndun ríkisstjórnar Samið um kappræður í júní og september Fico ekki talinn í lífshættu Þróun ES-30 flugvélarinnar flutt frá Svíþjóð til Kaliforníu Þetta er vitað um árásarmanninn Biden skorar á Trump Forsætisráðherra Slóvakíu í lífshættu eftir skotárás Þverpólitískar tillögur um viðbrögð vegna gervigreindar FIFA byrjað að vinda ofan af umbótum eftir spillingarhneykslið Fulltrúar Talíbana á ráðstefnu í Ósló Fyrsta opinbera málverkið af konunginum Karli III afhjúpað í gær Gróðureldar ógna olíuvinnslumiðstöð í Kanada Gríðarleg leit gerð að mönnum sem frelsuðu fanga í Frakklandi Skriðdrekar Ísraelshers komnir inn í íbúðahverfi í Rafah Framámaður AfD sektaður fyrir að nota slagorð nasista Sjá meira