Toppliðin unnu öll sína leiki | Öll úrslit dagsins úr Inkasso-deildinni Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 16. september 2017 16:18 Keflvíkingar leika í Pepsi-deildinni á næsta ári. vísir/ernir
Efstu fjögur liðin í Inkasso-deildinni unnu öll sína leiki í 21. umferðinni í dag.Fylkir tryggði sér sæti í Pepsi-deildinni á næsta ári með 0-6 stórsigri á Haukum. Adam Árni Róbertsson skoraði eina mark leiksins þegar Keflavík tók á móti Fram. Keflvíkingar eru með eins stigs forskot á Fylkismenn á toppi deildarinnar. Frammarar eru í 8. sætinu. Þróttarar báru sigurorð af ísköldum Selfyssingum, 4-0, í Laugardalnum. Öll mörkin komu á fyrstu 34 mínútum leiksins. Viktor Jónsson skoraði tvívegis og þeir Víðir Þorvarðarson og Oddur Björnsson sitt markið hvor. Þróttur er í 3. sæti deildarinnar með 39 stig, jafn mörg og HK sem er í sætinu fyrir neðan. HK vann 1-4 sigur á Gróttu á Nesinu. Þetta var tíundi sigur liðsins í síðustu 11 leikjum. Bjarni Gunnarsson skoraði tvö mörk fyrir HK-inga og þeir Reynir Már Sveinsson og Grétar Snær Gunnarsson sitt markið hvor. Jóhannes Hilmarsson gerði mark Seltirninga sem eru fallnir. Leiknir R. lenti 3-0 undir gegn Þór fyrir norðan en kom til baka og náði í stig. Lokatölur 1-1. Guðni Sigþórsson, Gunnar Örvar Stefánsson og Loftur Páll Eiríksson skoruðu mörk Þórs sem er í 7. sæti deildarinnar. Brynjar Hlöðversson, Sævar Atli Magnússon og Tómas Óli Garðarsson voru á skotskónum hjá Leikni sem er í 5. sætinu. Þá vann ÍR 2-0 sigur á Leiknir F. sem er þegar fallinn. Viktor Örn Guðmundsson og Jón Gísli Ström skoruðu mörk Breiðhyltinga. Upplýsingar um úrslit og markaskorara eru fengnar frá Fótbolta.net.
Pepsi Max-deild karla Tengdar fréttir Fylkir aftur upp í deild þeirra bestu Fylkir tryggði sér sæti í Pepsi deildinni á næsta tímabili eftir 6-0 sigur á Haukum í dag. 16. september 2017 15:56 Mest lesið Real Madrid Evrópumeistari í fimmtánda sinn Fótbolti Ráku Brynjar Björn strax eftir leik Íslenski boltinn Óli Jó skellihló eftir pillu Heimis til KSÍ: „Takk fyrir mig“ Íslenski boltinn Uppgjörið: KA - ÍA 2-3 | Skagamenn sóttu sigur norður Íslenski boltinn Freyr þakklátari fyrir ótrúlegustu hluti: „Búið að vera erfitt“ Fótbolti Urðu að sætta sig silfrið þrátt fyrir magnaða endurkomu Handbolti Afi skenkti leikmönnum Dortmund bjór Fótbolti Mike Tyson frestar bardaganum á móti Jake Paul Sport Karabatic skaut niður markvörðinn í síðasta skoti ferilsins Handbolti McIlroy fékk löggu til að afhenda konu sinni skilnaðarpappírana Golf Fleiri fréttir Uppgjörið: KA - ÍA 2-3 | Skagamenn sóttu sigur norður KA-menn hafa geta treyst á stigin í Skagaleikjunum síðustu ár Ráku Brynjar Björn strax eftir leik Óli Jó skellihló eftir pillu Heimis til KSÍ: „Takk fyrir mig“ Sjáðu markaveisluna og magnaða endurkomu Framara á móti FH „Veit ekki hvaðan þetta kom allt frá okkur“ „Eftir að við fengum á okkur fyrsta markið slökktum við á okkur“ Uppgjör: FH - Fram 3-3 | Ótrúleg endurkoma Fram í Krikanum Fyrstu sigrar Aftureldingar og Þróttar Njarðvíkingar rústuðu Þórsurum Líkti stórleiknum við messu: „Saknaði tryllingsins“ Leikdagurinn: Væri líklega kokkur ef frændurnir hefðu ekki látið hana standa í marki „Ég hef mjög gaman af því að æsa Arnar upp“ Sjáðu Víkinga ná stigi í uppbótatíma og Valsmenn leika sér að Stjörnunni Þróttarar langöflugastir í sölu á varningi og veitingum Fram og Grótta jöfn á toppnum „Búið að sitja aðeins í manni“ „Förum ekki að vorkenna okkur“ „Gott að fá sjálfstraust“ Uppgjör: Valur - Stjarnan 5-1 | Magalending Stjörnunnar á Hlíðarenda Uppgjör: Breiðablik - Víkingur R. 1-1 | Meistararnir björguðu stigi í uppbótartíma Systkinin sömdu bæði við Skagaliðið Breiðablik-Víkingur: Rígurinn sem reisti deildina upp frá dauðum Færeyingar á undan Íslendingum í VAR-málum Davíð Smári ekki á hliðarlínunni í næsta leik Vestra Markvarðamartröð KR: „Getur ekki barist um titla þegar markverðirnir gefa trúðamörk“ Fjögur félög græddu langmest á félagaskiptum Létu Valsmenn heyra það: „Þarna sjáið þið hvað þeim er farið að líða illa“ „Tanaður Lárus Orri mættur á svæðið“ Langþráð í Lautinni: Sjáðu mörkin úr fyrsta sigri Fylkismanna Sjá meira
Fylkir aftur upp í deild þeirra bestu Fylkir tryggði sér sæti í Pepsi deildinni á næsta tímabili eftir 6-0 sigur á Haukum í dag. 16. september 2017 15:56