Það er búið að redda tjaldi 13. júlí 2017 09:30 "Ég hef bara leitað í fróðleik frá forfeðrum og -mæðrum sem kunnu að nota grös á góðan hátt,“ segir Sóley um jurtanotkun sína. Vísir/Stefán
Það er stórafmæli en ég ætla bara að vera með pulsupartí í garðinum. Það er búið að redda tjaldi. Mér sýnist samt á spánni að það verði ágætis veður, að minnsta kosti þurrt,“ segir Sóley Elíasdóttir, leikkona og húðsnyrtivöruframleiðandi, um fimmtugsafmælið í dag. Hún kveðst búin að fara í eina afmælisferð með æskuvinkonum. „Hluti af hópnum varð fimmtugur í fyrra, við fórum til Ítalíu í vor og tókum mennina okkar með. Svo ætlum við fjölskyldan að fara á skíði um áramótin til Frakklands, átta eða níu saman. Erum fyrir löngu byrjuð að safna fyrir þeirri ferð. Ég hlakka rosalega til.“ Sóley kveðst ekki hafa ætlað að vera með neitt boð í dag. „Bæði var ég svo brennd af því að reyna sem barn að halda upp á afmæli á þessum tíma þegar allir voru úti um allt og svo líka út af þessum ferðum. En mér snerist hugur og ég ákvað að rigga upp einföldu partíi sem yrði ekki of kostnaðarsamt.“ Sumarið er tíminn sem Sóley safnar íslenskum jurtum í framleiðslu sína á húðvörum. „Ég tíni frá júní og út ágúst, já, reyndar lengra fram á haust, eftir því hverju ég er að sækjast eftir. „Við notum birkið mikið, laufin eru virk um miðsumarið en ef maður vill ná eiginleikum úr berkinum, þá er það betra á haustin. Laufin eru græðandi en börkurinn eykur teygjanleika húðarinnar. Sortulyngið tíni ég líka á haustin, í því eru efni sem gefa húðinni ljóma.“ Þetta er greinilega mikil stúdía en Sóley kveðst samt enginn sérfræðingur vera. „Ég hef einkum leitað í fróðleik frá forfeðrum og -mæðrum sem kunnu að nota grös á góðan hátt.“
Mest lesið Diljá Mist á lausu Lífið Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Lífið Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Lífið Stal senunni í sex milljarða króna brjóstahaldara Tíska og hönnun Píparapæja selur pent „penthouse“ Lífið Costanza á klakanum Lífið „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Lífið Pattra og Brynjar slá sér upp Lífið Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Lífið 50+: Hvers vegna við hættum (loksins) að nenna að útskýra okkur Áskorun Fleiri fréttir Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster „Þvílík gleði með þennan tíma“ Fluttur í annað fangelsi eftir fréttir af lúxuslífi og slagsmálum Sveitadraumurinn breyttist í martröð Drukku brjóstamjólk á brúðkaupsdaginn Fréttatía vikunnar: Mistök, oflæti og vélmenni Þrengt að sjoppum og skemmtistöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel Getur ekki lengur troðið upp eða keyrt vegna vatnshöfuðs Saga og Jón bætast í hóp Taskmaster-keppenda „Tárin streymdu niður vangana á mér“ Missti dóttur sína og tvö fóstur í kjölfarið Hvað veistu um… þjóðveginn frá Reykjavík til Akureyrar? Spurði um úrsögn Jóns fyrir hálfu ári Siggi Chaplin allur Sigga Beinteins í suðrænni sveiflu með kæró Berglind Alda og Auddi keppa í Taskmaster Sjá meira