Sýruárásum fjölgar í London Erna Agnes Sigurgeirsdóttir skrifar 14. júlí 2017 23:24 Verið er að skoða hvort að hægt sé að þyngja refsingar fyrir brot sem þessi. Vísir/AFP
Ráðist var á fimm manns í London í dag með sýru. Tilkynnt var um árásirnar fimm á rúmum klukkutíma. Sextán ára drengur var handtekinn grunaður um aðild að árásinni og er sem stendur í haldi lögreglu. Fimmtán ára drengur hefur einnig verið handtekinn. CNN og BBC greina frá. Lögreglan á svæðinu segir að ráðist hafi verið á mennina í sitthvor lagi. Talið er að árásarmennirnir hafi notast við rafhjól og skvett á gangandi og hjólandi vegfarendur og rænt suma þeirra í leiðinni. Staðfest er að tveir einstaklingar sem slösuðust unnu sem sendlar fyrir Deliveroo og UberEATS. Þá hafa margir sendlar neitað að fara út með sendingar seint á kvöldin vegna atburðanna. Einn er alvarlega slasaður þar sem sýrunni var skvett á andlit hans. Undanfarið hafa sýruárásir og árásir þar sem notast er við hættulegan vökva orðið algengari í London. Árið 2014 voru 166 tilfelli skráð og árið 2015 voru þau 261. Í fyrra voru þau svo orðin 454 talsins. Árásir sem þessar eiga sér flestar stað í austurhluta borgarinnar. Vökvinn hefur meðal annars verið notaður við innbrot og eru gengi líklegust til að notast við þess konar vopn. Vökvann er hægt að nálgast í verslunum og hefur lögreglan biðlað til kaupmanna að hafa augu með þeim vörum. Sara Newton, innanríkisráðherra, segir að verið sé að endurskoða löggjöf vegna málsins. Hún nefndi jafnframt að það yrði erfitt að koma í veg fyrir þetta þar sem oft væru þetta efni sem væru til á öllum heimilum. Breska þingið mun ræða málið næstkomandi mánudag. Almenningur hefur meðal annars þrýst á ráðamenn að nauðsynlegt sé að hafa leyfi fyrir því að kaupa hættuleg efni til að koma í veg fyrir að allir geti nálgast þau þegar þeim hentar.
Mest lesið Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent „Þetta er ákall“ Innlent „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Innlent Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar Innlent Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ Innlent Valgerður fer aftur frá SÁÁ Innlent Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Innlent Fleiri fréttir „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Sjá meira