Innlent

Jarðskjálfti í Mýrdalsjökli

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
Skjálftinn var af stærðinni 3,3. Hann mældist klukkan 19.12 í kvöld.
Skjálftinn var af stærðinni 3,3. Hann mældist klukkan 19.12 í kvöld. vísir/gva
Jarðskjálfti af stærðinni 3,3 mældist í Kötluöskjunni í Mýrdalsjökli klukkan rúmlega 19 í kvöld. Nokkrir minniháttar skjálftar hafa mælst í framhaldinu.

Samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofunni tók skjálftavirkni að aukast í fyrrasumar, en sá stærsti mældist í kringum 4,5.

Ekki er vitað til þess að skjálftinn í kvöld hafi fundist í byggð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×