Lúxusbíllinn Lexus GS mættur af nýrri kynslóð Finnur Thorlacius skrifar 5. júlí 2017 11:00 Lexus GS450h er 350 hestafla spyrnukerra og hlaðinn lúxus og fágun.
Hjá Lexus á Íslandi er mætt ný kynslóð lúxusbílsins Lexus GS og þar fer einkar fágaður bíll sem hver forstjóri væri myndugur af. Þetta er önnur kynslóð bílsins og fæst hann í tveimur útfærslum, GS 300h og GS 450h. Báðir bílarnir eru með Hybrid kerfi sem eykur bæði afl þeirra og minnkar eyðslu þeirra og mengun. Lexus GS 300h er með 223 hestafla drifrás þar sem 2,5 lítra bensínvél fær aðstoð frá rafmótorum. Á rafmótorunum má aka fyrsta spölinn hljóðlaust, en þó ekki eins lengi og á tengiltvinnbílum sem settir eru í samband við rafmagn. Hybrid kerfi bílanna endurheimtir hemlunarorkuna og vistar hana til átaka eða í hægum akstri. Lexus GS 450h er 350 hestöfl Báðir þessir bílar eru hlaðnir lúxus og innrétting þeirra einkar flott og snyrtileg og með fáguðum frágangi eins og von er vísa hjá Lexus. Lexus 450h er með öflugri 3,5 lítra bensínvél sem fær auka orku frá rafmótorum og er drifrás hans alls 350 hestöfl og fyrir vikið fer þar afar sprækur bíll. Þessi bíll er einungis 5,9 sekúndur í hundraðið en eyðir einungis 5,9 lítrum á hverja 100 kílómetra og mengað að auki aðeins 137 g/km og fellur því í góðan tollflokk. Þar gerir Lexus GS 300h enn betur og mengar aðeins 109 g/km og fæst því á afar góðu verði, eða 7.950.000 kr. Lexus GS 450h kostar 9.740.000 kr. Báðar útfærslur GS bílsins eru myndarlegar á velli með klassíska hönnun, en þó djarflega og þá sérstaklega að framanverðu. Lexus GS er í svipuðum stærðarflokki og BMW 5-línan, Audi A6, Mercedes Benz E-Class og Jaguar XF, en allir teljast þeir í flokki lúxusbíla.
Mest lesið Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Innlent Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Innlent „Þetta var algjörlega magnað“ Innlent Hafi verið beggja vegna borðsins Innlent Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Erlent „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Innlent Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Kom af fjöllum eftir tilkynningu Trump um orkuvopnahlé Erlent „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Innlent Nýtt flóð í Nepal hreif með sér brýr og hús Erlent